12. apríl 2021

UNICEF veitir börnum neyðaraðstoð eftir eldgosið á St. Vincent

UNICEF og samstarfsaðilar hafa nú þegar náð að veita 4.800 börnum á hættusvæði eyjunnar aðstoð

Þúsundir barna hafa þurft að yfirgefa heimili sín á eyjunni St. Vincent í Karíbahafi eftir að sprengigos hófst í eldfjallinu La Soufriere fyrir helgi. Eldosinu fylgdi mikið öskufall sem þekur nú stóran hluta eyjunnar. Eldfjallið gaus síðast árið 1979.

UNICEF og samstarfsaðilar hafa nú þegar náð að veita 4.800 börnum á hættusvæði eyjunnar aðstoð, meðal annars komið þeim í öruggt skjól í neyðarskýlum og tryggt aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu. Búist er við því að meira en þúsund fjölskyldur hafi misst lífsviðurværi sín og þurfi tafarlausa fjárhagsaðstoð.

„Okkar helstu áhyggjur eru ekki einungis öryggi þeirra fimm þúsund barna og fjölskyldna sem búa á hættusvæðinu heldur einnig velferð allra íbúa eyjunnar,“ sagði Dr Aloys Kamuragiye, fulltrúi UNICEF fyrir austur-Karíbahaf. Auka þarf neyðaraðgerðir á svæðinu til þess að ná til allra þeirra sem þurfa nú hjálp.

Heimsforeldrar UNICEF gera okkur kleift að bregðast strax við þegar neyðarástand skapast vegna náttúruhamfara. UNICEF mun halda áfram að veita íbúum St. Vincent aðstoð og tryggja öryggi þeirra barna sem eru nú í hættu.

Hægt er að taka þátt í baráttu UNICEF fyrir velferð og réttindum barna með því að gerast Heimsforeldri hér.

Fleiri
fréttir

28. mars 2025

Heimsbyggðin geti ekki hunsað „helvíti á jörðu“ í Súdan
Lesa meira

27. mars 2025

Niðurskurður bitnar á lífsnauðsynlegri næringarþjónustu fjórtán milljóna barna
Lesa meira

25. mars 2025

Sameinuðu þjóðirnar: Áratuga framfarir í baráttunni gegn barnadauða í hættu
Lesa meira
Fara í fréttasafn