Neyðarsöfnun

fyrir börn í Úkraínu

Stakur styrkur
Styrkja UNICEF
Stakur styrkur
Styrkja UNICEF

Hjálpaðu

Hringdu í 907-3013 og gefðu 3.000 krónur.

Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102060

Kennitala: 481203-2950

Börn í Úkraínu þurfa stuðning þinn.

Meira en fjögur ár eru liðin frá því að stríðið í Úkraínu magnaðist með innrásinni í febrúar 2022. Á þeim tíma hafa tæplega 4.000 börn verið drepin eða særð samkvæmt staðfestum gögnum Sameinuðu þjóðanna og raunverulegur fjöldi er líklega hærri. Stríðið heldur áfram að ógna lífi og velferð barna daglega.

Í dag þurfa um 10,8 milljónir manna mannúðaraðstoð í Úkraínu, þar á meðal 2,2 milljónir barna. Árásir á heimili, skóla, sjúkrahús og aðra mikilvæga innviði hafa raskað aðgengi fjölskyldna að rafmagni, vatni, hita, heilbrigðisþjónustu og menntun. Milljónir barna glíma jafnframt við afleiðingar langvarandi óöryggis og áfalla.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, starfar áfram á vettvangi í Úkraínu og í nágrannaríkjum sem taka á móti flóttafólki. Með stuðningi einstaklinga, fyrirtækja og samstarfsaðila veitir UNICEF börnum og fjölskyldum aðgang að heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni, menntun, barnavernd, sálfélagslegum stuðningi og fjárhagsaðstoð til að mæta brýnustu þörfum sínum.

UNICEF vinnur einnig að því að endurbyggja og styrkja nauðsynlega innviði, styðja skóla og tryggja að börn geti haldið áfram námi þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Á sama tíma eru neyðarbirgðir og annar lífsnauðsynlegur stuðningur fluttur til þeirra svæða þar sem þörfin er mest.

Milljónir barna í Úkraínu þurfa áfram á stuðningi að halda. Við gefumst aldrei upp.