Neyðarsöfnun
fyrir börn í Sýrlandi
Hjálpaðu
Hringdu í 907-3011 og gefðu 3.000 krónur.
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög: 701-26-102040 kennitala: 481203-2950
Stríðið í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í nær 14 ár og 14,6 milljónir Sýrlendinga, þar af 6,5 milljónir barna þurfa á mannúðaraðstoð að halda. Sjö milljónir íbúa eru á vergangi innan landsins eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín. Milljónir Sýrlendinga hafa flúið yfir landamærin til nágrannaríkja og víðar og búa nú í flóttamannabúðum við óásættanlegar aðstæður.
Nýlegar vendingar benda til þess að átökunum geti loksins verið að ljúka en staðan er viðkvæm og margt en óljóst.
UNICEF hefur frá upphafi stríðs og allar götur síðan 1970 verið á vettvangi í Sýrlandi til að tryggja velferð og réttindi barna þar í landi. Unnið að því að tryggja börnum skjól, menntun, næringu og heilbrigðisþjónustu.
Áframhaldandi stuðningur þinn við börn í Sýrlandi skiptir máli, þar sem ekkert barn ber ábyrgð á stríði. En afleiðingar þeirra koma ávallt verst niður á þeim.