14. september 2020

UNICEF á Íslandi hvetur stjórnvöld til að taka á móti fylgdarlausum börnum frá Lesbos

Fylgdarlaus börn á flótta eru einn viðkvæmasti hópur barna í Evrópu og mikilvægt að Ísland, ásamt öðrum ríkjum Evrópu, axli ábyrgð.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fagnar því að 406 fylgdarlaus börn hafi verið flutt frá eyjunni Lesbos í öruggt skjól á meginlandi Grikklands eftir að Moria flóttamannabúðirnar brunnu til grunna í síðustu viku. Það er þó langt í frá nóg. Í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér er þess krafist að öll börn og aðrir viðkvæmir hópar á eyjunni verði flutt í öruggt skjól á meginlandi Grikklands á meðan biðlað er til ríkja Evrópu að finna tafarlaust mannúðlegar og varanlegar lausnir í málefnum barna á flótta þar sem réttindi þeirra eru virt.

Enn eru þúsundir barna og barnafjölskyldna umkomulaus á eyjunni og þurfa tafarlaust öruggt skjól, vernd og aðgang að grunnþjónustu. Það að nokkur Evrópuríki hafi boðist til að taka á móti fylgdarlausum börnum frá Lesbos er jákvætt skref og biðlar UNICEF til fleiri landa að grípa til aðgerða þar sem Grikkland getur ekki haldið áfram að bera þungann eitt.

Ísland þarf að axla ábyrgð

UNICEF á Íslandi tekur undir þessa áskorun og hvetur íslensk stjórnvöld til þess að taka á móti fylgdarlausum börnum sem dvelja í flóttamannabúðum á Grikklandi. „Aðstæður í Moria flóttamannabúðunum á eyjunni Lesbos voru ómannúðlegar og án fordæma í Evrópu, en eftir brunann í síðustu viku gistir nú fjöldi barna á götunni. Fylgdarlaus börn á flótta eru einn viðkvæmasti hópur barna í Evrópu og mikilvægt að Ísland, ásamt öðrum ríkjum Evrópu, axli ábyrgð,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Auk þess hvetur UNICEF á Íslandi stjórvöld til að hætta tafarlaust að senda flóttafólk til Grikklands.

UNICEF hefur unnið með fylgdarlausum börnum og barnafjölskyldum á Lesbos í fleiri ár og sinnir meðal annars barnavernd, fjölskyldusameiningu, forvörnum og viðbrögðum við ofbeldi. Eftir eldsvoðann er brýn þörf á að flytja börn og aðra viðkvæma hópa í öruggt og viðeigandi húsaskjól, útvega mat, hreint vatn og hreinlætisvörur og hjálpa íbúum að verja sig gegn kórónaveirusmitum. UNICEF mun áfram að styðja grísk stjórnvöld og samstarfsaðila í að vernda börn og standa vörð um réttindi barna á meðan unnið er að mannúðlegri lausn í málefnum barna á flótta og á vergangi í Evrópu.

Fleiri
fréttir

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira
Fara í fréttasafn