26. nóvember 2021

UNICEF sker upp herör gegn hungri og hækkar verð á hnetumauki um 50%

Hungur og neyð er eitthvað sem ekkert barn ætti að þurfa að búa við. Milljónir barna glíma við næringarskort en það er til einföld og ódýr lausn.

UNICEF á Íslandi heldur uppteknum hætti á afsláttardeginum mikla, Svörtum föstudegi, og býður nú 100 pakka af næringarríku jarðhnetumauki á 50% HÆRRA verði en venjulega á vef sínum, Sannargjafir.is. UNICEF gefur nefnilega engan afslátt af réttindum barna og baráttunni við hungur í heiminum. Nú dynja á okkur nær daglega fréttir af skelfilegu ástandi barna um allan heim sem glíma við næringarskort og ekkert fæðuöryggi, til dæmis í Afganistan, Jemen, Madagaskar og Eþíópíu. Jarðhnetumaukið gerir kraftaverk í meðhöndlun vannærðra barna og hefur um árabil verið ein vinsælasta varan á Sannargjafir.is. Þú kaupir gjöfina á netinu, færð gjafabréf í tölvupósti, án biðraða og UNICEF sér síðan um að koma þessum mikilvægu hjálpargögnum til barna þar sem þörfin er mest.

„Hungur og neyð er eitthvað sem ekkert barn ætti að þurfa að búa við. Milljónir barna glíma við næringarskort en það er til einföld og ódýr lausn. Við hækkum því verðið á jarðhnetumaukspakkanum okkar um 50% í tilefni dagsins, en engar áhyggjur. Upphæðina sem greidd er aukalega nýtir UNICEF einungis til að kaupa enn fleiri hjálpargögn fyrir börn í neyð,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Á Svörtum föstudegi má víða gera kjarakaup en oft endar ýmislegt sem við þurfum ekki í innkaupakörfunni okkar. Með Sönnum gjöfum UNICEF getur þú alltaf verið viss um að vera að kaupa gjafir sem skipta máli og bjarga lífum.“


Allt um þetta einstaka ekki-tilboð á vef okkar, Sannargjafir.is

Fleiri
fréttir

20. desember 2024

Opnunartími skrifstofu um hátíðarnar
Lesa meira

19. desember 2024

BM Vallá og UNICEF á Íslandi undirrita samstarfssamning til þriggja ára 
Lesa meira

18. desember 2024

UNICEF: Börn í Sýrlandi þurfa frið
Lesa meira
Fara í fréttasafn