Velferð milljóna barna er í hættu eftir öflugan jarðskjálfta af stærðinni 7,7 í Mjanmar á föstudag. Öflugir eftirskjálftar hafa einnig orðið en þegar þetta er skrifað stendur tala látinna í minnst 1.700 manns. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, varar við því að neyð barna og fjölskyldna muni versna hratt í kjölfarið og hvetur alþjóðasamfélagið til að bregðast skjótt við og styðja lífsbjargandi aðgerðir í þágu barna og fjölskyldna á hamfarasvæðinu.
UNICEF á Íslandi hóf um helgina neyðarsöfnun vegna hamfaranna sem hægt er að styrkja á UNICEF.is
„Jarðskjálftinn er enn eitt áfallið fyrir börn í Mjanmar enda höfðu mörg þeirra þegar upplifað átök, flótta og skort,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. „Á örfáum mínútum misstu þau ástvini, heimili sín og aðgang að nauðsynlegri þjónustu. Þörfin er gífurleg og eykst stöðugt.“
Jarðskjálftinn og eftirskjálftarnir hafa valdið víðtækri eyðileggingu í miðhluta Mjanmar. Samkvæmt opinberum tölum hafa yfir 1.700 manns látist og þúsundir særst—mörg þeirra börn. Talið er að tala látinna muni hækka eftir því sem björgunaraðgerðir halda áfram og umfang hamfaranna verður ljóst.
Heimili, skólar, sjúkrahús og mikilvægir innviðir hafa orðið fyrir miklum skemmdum. Skriðuföll og hrunin vegakerfi hafa valdið rafmagns- og fjarskiptaleysi í mörgum byggðum. Fjölskyldur sem þegar bjuggu við brothættar aðstæður standa nú frammi fyrir enn meiri þjáningum, þar sem aðgangur að hreinu vatni, heilbrigðisþjónustu og skjóli er mjög takmarkaður.
80 tonn af hjálpargögnum frá UNICEF
UNICEF-teymi eru á vettvangi á hamfarasvæðum og vinna með samstarfsaðilum og staðbundnum viðbragðsaðilum að því að meta aðstæður og veita neyðaraðstoð.
Hluti af fyrstu viðbrögðum UNICEF var að senda 80 tonn af neyðar- og hjálpargögnum, þar á meðal sjúkragögn, tjöld, hreinlætispakka, sótthreinsiefni og fleira, til að veita börnum og fjölskyldum tafarlausa aðstoð.
„Börn í Mjanmar eru að þola krísu ofan á krísu,“ segir Russell. „UNICEF er að stórauka viðbragð sitt og starf og alþjóðasamfélagið er að bregðast við. En þörf er á frekari fjárstuðningi til að bjarga og vernda líf barna og fjölskyldna þeirra í kjölfar þessara hamfara. Á sama tíma þurfum við öruggt, skjótt og óhindrað aðgengi mannúðaraðstoðar að þeim svæðum sem orðið hafa verst úti, til að veita þeim hjálp sem eru í mestri neyð.“
Flókin staða á Mjanmar
Mjanmar er ein af flóknustu mannúðarkrísum heimsins. Fyrir náttúruhamfarirnar nú voru yfir 6,5 milljónir barna í brýnni þörf fyrir aðstoð og ein af hverjum þremur manneskjum á flótta var barn. En fjármagn hefur ekki fylgt þessari miklu þörf og greinir UNICEF frá því að innan við 10 prósent af mannúðarákalli UNICEF fyrir börn á svæðinu fyrir árið 2025 sé fjármagnað (e. Humanitarian Action for Children 2025).
UNICEF óskar því eftir stuðningi til að tryggja aukna afhendingu lífsbjargandi mannúðaraðstoðar til barna og fjölskyldna í Mjanmar. Þar á meðal hreint vatn, heilbrigðisþjónustu, vernd, sálrænan stuðning og menntun við neyðaraðstæður.
-------
Hægt er að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn og fjölskyldur á Mjanmar hér á UNICEF.is
Söfnunarreikningur fyrir frjáls framlög er:
701-26-102020 Kennitala: 481203-2950.
Eða hringja í 907-3016 til að gefa 3.000 krónur.