23. febrúar 2024

Tvö ár af stríði í Úkraínu: Sögulegur stuðningur við neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi

Almenningur og fyrirtæki á Íslandi styrkt neyðarsöfnun um rúmar 189 milljónir – Börn í víglínunni varið sem nemur 7 mánuðum neðanjarðar

Ung stúlka í Kíev leitar skjóls í neðanjaðarlestakerfi höfuðborgar Úkraínu. Mynd/UNICEF

Í dag eru tvö ár síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst og enn sér ekki fyrir endann á þeim skelfilegu átökum sem kostað hafa þúsundir einstaklinga lífið, þar af mörg hundruð börn, og skilið eftir slóð eyðileggingar í landinu. Linnulausar árásir og flótti hefur tekið sinn toll á íbúum og börnum í Úkraínu. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, áætlar að börn í borgum þar sem átökin hafa verið hvað hörðust hafi á þessum tíma þurft að verja á bilinu 3-5 þúsund klukkustundum neðanjarðar í skjóli. Það jafngildir nærri sjö mánuðum, með tilheyrandi afleiðingum ekki á aðeins andlega og líkamlega heilsu þeirra, heldur einnig grundvallarréttindi.  

Staðið vörð um réttindi barna frá byrjun 

UNICEF hefur verið til staðar í Úkraínu frá upphafi innrásarinnar og gott betur. Ekki aðeins á vettvangi heldur einnig við landamærin og í nágrannaríkjunum þangað sem hundruð þúsunda hafa flúið undan sprengjuregni og stríðsátökum. UNICEF hefur á þessum tíma aukið starfsemi sína innan Úkraínu og er nú í Kyiv, Lviv, Odesa, Dnipro, Poltava, Mykolaiv og Kharkiv að veita mannúðaraðstoð og fjölskyldum og börnum nauðsynlegan stuðning.   

Í Úkraínu hefur UNICEF einbeitt sér að heilbrigðisþjónustu, bólusetningum, næringarmálum, barnavernd, menntun, dreifingu á hreinu vatni og hreinlætisvörum, félagsþjónustu og sálfélagslegum stuðningi.  Í nágrannaríkjum vinnur UNICEF með stjórnvöldum á öllum stigum og samstarfsaðilum við að styrkja innviði félagskerfis viðkomandi ríkja svo hægt sé að veita börnum á flótta og jaðarsettum hópum gæðamenntun, heilbrigðis- og félagsþjónustu.   

Bara á síðasta ári innan Úkraínu tryggði UNICEF: 

  • Aðgengi 1,3 milljóna barna að formlegri og óformlegri menntun.  
  • 2,5 milljónum barna og forráðamanna aðgengi að sálrænum stuðningi og sálfélagslegri þjónustu. 
  • 5,5 milljónum einstaklinga öruggt drykkjarvatn og til heimilisnota.  
  • Aðgengi 5 milljóna barna og kvenna að grunnheilbrigðisþjónustu.  

 

Í ríkjum sem tekið hafa á móti fólki sem flúið hefur Úkraínu hefur UNICEF

  • Veitt rúmlega 1.250 þúsund börnum aðgengi að formlegri og óformlegri menntun.
  • Veitt 1,3 milljónum barna og forráðamanna aðgengi að sálrænum stuðningi og sálfélagslegri þjónustu.  
  • Styrkt 97 þúsund heimili með beinum peningastyrkjum, bæði í gegnum verkefni sem fjármögnuð eru af UNICEF og með tæknilegri aðstoð við opinber verkefni stjórnvalda. 
  • Veitt 25 þúsund manns drykkjarvatn og til heimilisnota og yfir 100 þúsund einstaklingum hreinlætishjálpargögn (s.k. WASH- gögn).  
  • Veitt 346 þúsund börnum og konum aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu. 
  • Sinnt fræðslu og forvörnum varðandi ofbeldi og veitt aðgengi að þjónustu á borð við félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, næringu, menntun til rúmlega 23 milljóna einstaklinga.  

 Sögulegur stuðningur við neyðarsöfnunina á Íslandi 

Frá upphafi innrásar 2022 hefur UNICEF á Íslandi staðið fyrir neyðarsöfnun vegna þessara og ótal fleiri verkefna UNICEF í Úkraínu og nágrannaríkjum. Árið 2022 var neyðarsöfnun okkar vegna Úkraínu orðin stærsta einstaka neyðarsöfnun í nærri 20 ára sögu landsnefndar UNICEF á Íslandi. Það er því óhætt að segja að stuðningur almennings og fyrirtækja á Íslandi við neyð barna í Úkraínu hafi verið sögulegur og eftir honum tekið langt út fyrir landsteinana.   

Í dag hafa rúmlega 189,3 milljónir íslenskra króna safnast í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna Úkraínu á þessum tveimur árum sem liðin eru frá innrásinni og stendur söfnunin enn yfir.   

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi: 

„Á þessum hryggilegu tímamótum stríðsins ber að ítreka þakkir fyrir sögulegan stuðning almennings og fyrirtækja hér á landi við verkefni UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, í þágu barna við þessar skelfilegu aðstæður. Því miður lítur ekki út fyrir að stríðinu ljúki í nánustu framtíð og þörfin mun halda áfram að vera til staðar. Starf UNICEF í Úkraínu heldur áfram og neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi sömuleiðis. Við gefumst aldrei upp í yfirlýstu markmiði okkar að tryggja réttindi allra barna.  Það sem börn í Úkraínu þurfa, líkt öll börn um allan heim sem búa við stríð og ógnir, er fyrst og fremst friður. “

Fleiri
fréttir

20. desember 2024

Opnunartími skrifstofu um hátíðarnar
Lesa meira

19. desember 2024

BM Vallá og UNICEF á Íslandi undirrita samstarfssamning til þriggja ára 
Lesa meira

18. desember 2024

UNICEF: Börn í Sýrlandi þurfa frið
Lesa meira
Fara í fréttasafn