20. nóvember 2020

Hlustum á börn og ungmenni!

Í dag er alþjóðadagur barna og afmælisdagur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, útbreiddasta mannréttindasáttmála heims. Alþjóðadagur barna verður að vera dagur þar sem við hugsum um lausnir og ímyndum okkur betri framtíð, fyrir öll börn.

Í dag er alþjóðadagur barna og afmælisdagur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, útbreiddasta mannréttindasáttmála heims. Árið 2020 hefur verið erfitt fyrir börn um allan heim og dagurinn litast óneitanlega af kórónaveirunni (COVID-19). Í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vara samtökin við því að kórónaveiran muni valda óafturkræfum skaða og stefna heilli kynslóð barna í hættu ef ríkisstjórnir og alþjóðasamfélagið bregðast ekki við afleiðingum veirunnar. Skýrslan Averting a Lost COVID Generation er gefin út í tilefni af alþjóðadegi barna og er fyrsta ítarlega greiningin á þeim skelfilegu afleiðingum sem kórónaveiran hefur á börn og ungmenni, afleiðingar sem eiga einungis eftir að aukast eftir því sem heimsfaraldurinn dregst á langinn.

„Sú mýta að kórónaveiran hafi lítil áhrif á börn eða ungt fólk hefur verið viðvarandi. Ekkert gæti þó verið fjarri sanleikanum,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi. Þó svo að börn og ungt fólk verði ef til vill minna veik og smiti síður en fullorðnir þá finnast afleiðingarnar víða, sérstaklega hjá fátækustu og jaðarsettustu hópunum sem voru í mjög viðkvæmri stöðu fyrir. Þetta sýnir sig meðal annars í röskun á heilbrigðis- og félagsþjónustu, lokun skóla, vaxandi fátækt og vannæringu og aukningu í tilkynningum vegna ofbeldis og vanrækslu.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að eitt af hverjum níu Covid-tilfellum sem hafa verið tilkynnt í heiminum eru börn og ungmenni og hefur smitum í þessum aldurshópi fjölgað mikið. Langtíma áhrif veirunnar á líf heillar kynslóðar eru ótvíræð. Á heimsvísu er áætlað að fjöldi barna sem búa við fátækt á mörgum sviðum - börn sem hafa ekki aðgang að menntun, heilsugæslu, húsnæði, næringu, hreinlætisaðstöðu eða hreinu vatni - hafi aukist um 15 prósent eða um 140 milljónir barna árið 2020.

„Ógnirnar eru margvíslegar og því lengur sem þetta ástand varir, þeim mun djúpstæðari áhrif mun þetta hafa á menntun barna, heilsu þeirra, næringu og vellíðan. Alþjóðadagur barna verður að vera dagur þar sem við hugsum um lausnir og ímyndum okkur betri framtíð, fyrir öll börn,“ segir Steinunn.

Aðgerðaáætlun UNICEF við afleiðingum COVID-19

Með skýrslunni fylgir aðgerðaáætlun og ákall um að ríkisstjórnir, einkageirinn og samstarfsaðilar hlusti á börn og taki áætlunina alvarlega. Áætlunin er í sex liðum og felur í sér að:

  1. Tryggja að öll börn hafi aðgang að menntun og að stafræna bilið verði brúað
  2. Tryggja aðgang að næringu og heilbrigðisþjónustu og gera bólusetningar viðráðanlegar og aðgengilegar öllum börnum
  3. Styðja við geðheilbrigði barna og ungs fólks og binda enda á misnotkun, kynbundið ofbeldi og vanrækslu
  4. Auka aðgengi að öruggu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu og takast á við umhverfisspjöll og loftslagsbreytingar
  5. Bregðast við aukinni fátækt meðal barna
  6. Auka aðgerðir til að vernda og styðja börn og fjölskyldur þeirra sem búa við stríðsátök, hamfarir og eru á flótta.

„Það skiptir máli að hlusta á börn og ungmenni. En það er ekki nóg að hlusta, það þarf að taka mark á því sem þau hafa að segja, að leifa ungu fólki að hafa áhrif á ákvarðanir sem þau varðar og að ráðamenn mæti þeirra þörfum. Unga fólkið mun þurfa að lifa með afleiðingum þessa heimsfaraldurs og hvernig brugðist er við hefur bein áhrif á þeirra framtíð,“ segir Steinunn.

Börn á Íslandi teikna heiminn eftir Covid

Kórónaveiran virðir engin landamæri og sama hvar í heiminum við búum hefur heimsfaraldurinn áhrif. Í tilefni af alþjóðadegi barna í ár kallaði UNICEF á Íslandi því eftir teikningum frá börnum og ungmennum á Íslandi þar sem viðfangsefnið var að ímynda sér þann heim sem þau vilja byggja fyrir börn eftir COVID-19.

Efni myndanna var frjálst en það sem skein í gegn var sú von þeirra að allir lifi í sátt og samlyndi, að allir séu góðir við hvorn annan, að í heiminum ríki friður og jafnrétti, börn fái að vera börn og að réttindi þeirra séu virt.

„Þetta er heimur þar sem öllum líður vel, þar sem allir meiga ganga í skóla, ekkert ofbeldi og allir eru jafnir. Allir njóta réttinda sinna. Og engir bílar,“ segir Jóhanna, nemi í 6. bekk í Laugarnesskóla.

Teikningar frá börnum um heiminn sem þau vilja alast upp í munu birtast á samfélagsmiðlum UNICEF á Íslandi í dag undir myllumerkinu #voicesofyouth.

Fleiri
fréttir

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira
Fara í fréttasafn