18. nóvember 2022

Fyrstu réttindaskólar heimsins á leikskólastigi eru í Kópavogi

Leikskólabörnin sungu fyrir viðstadda og tóku við viðurkenningunum frá UNICEF.

Fimm leikskólar í Kópavogi, Arnarsmári, Álfaheiði, Furugrund, Kópahvoll og Sólhvörf fengu í dag viðurkenningu fyrir að vera réttindaskólar UNICEF. Leikskólarnir eru þeir fyrstu í heiminum og til þess að hljóta þessa viðurkenningu.

Líf og fjör var við athöfnina, börn úr leikskólunum sungu tvö lög, réttindaleikskólaverkefnið var kynnt og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs ávarpaði gesti. Þá afhentu Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF og Sigyn Blöndal skólastjóri Réttindaskólans viðurkenninguna og tóku börn úr efstu deildum leikskólanna við henni.

Réttindaskólar UNICEF leggja áherslu á að byggja upp upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Verkefnið byggir á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er alþjóðlegt verkefni sem snýst um að auka virðingu, vernd og framkvæmd mannréttinda.

„Við í Kópavogi erum ótrúlega stolt af því fyrstu leikskólar sem verða réttindaskólar UNICEF eru í bænum okkar. Það er mikilvægt að hlusta á raddir barna og virkja þau til þátttöku eins og við erum að gera hér í Kópavogi. Þannig búum við til enn betra samfélag,“ sagði Ásdís við tækifærið.

Samstarf leikskólanna sem fengu viðurkenninguna og UNICEF hófst í ársbyrjun 2020 og hófst þá þróunarvinna til að aðlaga verkefni réttindaskóla að starfi leikskóla.

Í tengslum við verkefnið hafa verið stofnuð réttindaráð í leikskólunum en í þeim fá börnin tækifæri til að hafa áhrif. Umræður og verkefni sem tengjast aðgengi og þátttöku, jafnrétt og framkomu við skólafélaga hafa líka verið sett á dagskrá.

 

MARKMIÐ RÉTTINDASKÓLA UNICEF ERU:

  • ✓ Aukin þekking á mannréttindum – starfsfólk og börn auka þekkingu sína á réttindum barna
  • ✓ Lýðræði – börn fá reglubundin tækifæri til þess að taka þátt í ákvarðanatöku
  • ✓ Eldmóður fyrir mannréttindum – börn eru hvött til þess að beita sér fyrir réttindum sínum og annarra
  • ✓ Forsendur Barnasáttmálans hluti af daglegu starfi – stjórnendur vinna með markvissum hætti að því að gera sáttmálann að viðmiði í stjórnsýslu skóla- og frístundastarfs
  • ✓ Samstarf – samstarf skóla við alla sem koma að uppeldi barnsins með það að markmiði að raungera réttindi barnsins.
Fleiri
fréttir

20. desember 2024

Opnunartími skrifstofu um hátíðarnar
Lesa meira

19. desember 2024

BM Vallá og UNICEF á Íslandi undirrita samstarfssamning til þriggja ára 
Lesa meira

18. desember 2024

UNICEF: Börn í Sýrlandi þurfa frið
Lesa meira
Fara í fréttasafn