20. september 2024

Búðu til pláss – fyrir öll börn 

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, skrifar:

„Hjálpumst öll að – búum þeim stað. 

Búðu til pláss í hjartanu þínu.“ 

Landsnefnd UNICEF á Íslandi fagnar nú 20 ára afmæli sínu með ákalli til þjóðarinnar sem vitnar í ljóðið þar sem upphafsorð þessarar greinar er um finna. Ákall um að landsmenn búi til pláss í hjartanu sínu fyrir öll börn sem þurfa á okkur að halda og gerist Heimsforeldrar UNICEF. 

UNICEF á Íslandi hófst sem lítið ástríðuverkefni örfárra eldsála með draum og lítið skrifborð fyrir 20 árum síðan. Þetta ástríðuverkefni hefur vaxið og dafnað í hlutfallslega eina öflugustu landsnefnd UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í heiminum. Hér á litla Íslandi eigum við heimsmet í fjölda Heimsforeldra miðað við höfðatölu. Heimsforeldra sem mánaðarlega styðja við verkefni og markmið Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um að tryggja réttindi og velferð allra barna, um allan heim. Við erum svo heppin að eiga hér mörg hundruð Heimsforeldra sem hafa verið með okkur frá upphafi og nú alls ríflega 23 þúsund Heimsforeldra sem gefa til starfsins í hverjum mánuði. Við erum þeim þakklát fyrir traustið og þau geta verið stolt af sínum árangri. 

Því þrátt fyrir að áskoranirnar séu vissulega margar þá hefur margt breyst til hins betra fyrir börn í heiminum á þessum 20 árum. Dánartíðni barna undir fimm ára aldri hefur dregist saman um 50% frá árinu 2000 og t.d. í Kambódíu hefur ungbarnadauði dregist saman um 75% bara síðustu 20 árin. Því öll erum við sammála um að ekkert barn ætti að láta lífið vegna sjúkdóma sem hægt er að koma í veg fyrir. Ekki vegna hungurs eða stríðsátaka. Á þessum 20 árum hefur aðgengi að menntun, sérstaklega stúlkna, verið stórlega bætt og fleiri börn hafa aðgang að hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu og færri börn eru neydd til barnaþrælkunar, í hjónaband eða til að bera vopn. Fyrir vikið fá fleiri börn að vera einfaldlega börn í heiminum í dag. Heimsforeldrar UNICEF eiga hlutdeild í öllum þessum jákvæðu breytingum í þágu barna um allan heim og og líf þeirra á pláss í hjarta þeirra. 

Hvað þýðir þá að búa til pláss í hjartanu sínu? Einmitt þetta. Að vita að þrátt fyrir að áskoranirnar virðist oft óyfirstíganlega miklar í fjölkrísuheimi, þar sem réttindi og velferð barna eru fótum troðin, þá tökum við afstöðu með von, frið og samkennd. Þeirri staðföstu trú að með því að vera hluti af jákvæðum samtakamætti er hægt að gera heiminn að betri stað fyrir öll börn.  

Og það er hægt. Við höfum séð það. 

Búðu til pláss – í hjartanu þínu. Vertu hluti af lausninni. Vertu Heimsforeldri UNICEF. 

---
Greinin birtist fyrst á Vísi 20. september 2024

Fleiri
fréttir

20. nóvember 2024

UNICEF: Framtíð barnæskunnar hangir á bláþræði í breyttum heimi 
Lesa meira

20. nóvember 2024

Ungmenni fá orðið á Alþjóðadegi barna: „Kæra fullorðna fólk– Hlustið á okkur“
Lesa meira

18. nóvember 2024

Þúsund dagar af stríði í Úkraínu: 16 börn drepin eða særð í hverri viku
Lesa meira
Fara í fréttasafn