14. mars 2025

Vertu meðbyr mannúðar 

Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, skrifar:

Skjótt skipast veður í lofti. Á undrastuttum tíma hafa heimsmálin gerbreyst og mannkynssagan virðist skrifa sig fyrir augunum á okkur. Daglega dynja á okkur fréttir sem eru svo sláandi að einu mögulegu viðbrögðin virðast hneykslan, vanmáttur eða meðvitað sinnuleysi. Þetta er svo skelfilegt –en hvað get ég gert? 

Þú, ég, við, getum gert heilmikið. Við höfum mikilvægt hlutverk í hringiðu atburða samtímans. Í bálhvössum stormi ótta, þröngsýni og sundrungar er þörf á skjólvegg fólks sem tekur skýra afstöðu með samkennd, samstarfi og von.  

Velferð, réttindi og líf milljóna barna og fjölskyldna um allan heim hefur um áratugaskeið treyst á að fólk eins og þú áttir þig á hlutverki þínu. Hlutverki þínu sem meðbyr mannúðar í öllum veðrum. Fleiri börn en nokkru sinni fyrr upplifa nú fimm ára afmælisdaginn sinn, við höfum nánast útrýmt lífshættulegum sjúkdómum á borð við mænusótt með markvissum bólusetningum, milljónir barna fá á hverju ári tækifæri til lífs og þroska með meðhöndlun við bráðavannæringu og fleiri börn ganga í skóla nú en fyrir tveimur áratugum. 

Þessi árangur er nú í hættu. Ein birtingarmynd óttans er að mörg af stærstu ríkjum heims velja nú að skera niður framlög sín til þróunarsamvinnu og mannúðarstarfs. Af illri nauðsyn er von og samkennd fórnað fyrir vígbúnað í nafni öryggis.  

Í tilfelli UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, þýðir það að öryggisneti milljóna barna og fjölskylda um allan heim er stefnt í voða. Milljónir barna munu ekki njóta bólusetninga, lækningar, næringar, menntunar – framtíðar. Áskorunum sem við kunnum að leysa verður leyft að vaxa og versna: útbreiðsla farsótta, hungursneyð, menntunarskortur (sérstaklega stúlkna), barnahjónabönd, fátækt, ofbeldi, fólksflótti.  

Þetta eru allt öryggismál. Fjárfesting í þróunarsamvinnu, samkennd og mannúð er fjárfesting í öryggismálum. Meðbyr mannúðar eykur öryggi okkar allra. 

Okkar hlutverk er að taka afstöðu og styðja alþjóðastarf í þágu þróunar og mannúðar með orðum og peningum. Einstaklingar geta haft áhrif með því að Heimsforeldrar UNICEF og standa með málstað sem er þeim kær. Stjórnvöld geta haldið áfram að beita röddu Íslands í þágu mannréttinda á alþjóðavettvangi og fjárfest af metnaði í þróunarsamvinnu. Nú er tíminn til að standa fast á gildunum og beita sér. Við getum það öll. Við höfum öll hlutverk í hringiðunni. Verum meðbyr mannúðar.  

Skráðu þig sem Heimsforeldri UNICEF í dag.

Fleiri
fréttir

14. mars 2025

Vertu meðbyr mannúðar 
Lesa meira

14. mars 2025

Heil kynslóð barna í Súdan í hættu
Lesa meira

13. mars 2025

Mislingasmit ekki verið fleiri í aldarfjórðung í Evrópu og Mið-Asíu
Lesa meira
Fara í fréttasafn