UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur brugðist skjótt við og stóraukið innflutning og dreifingu á hjálpargögnum á Gaza nú þegar rúm vika er síðan vopnahlé komst á. Rúmlega 350 vöruflutningabílar, fullir af nauðsynlegum hjálpargögnum og mannúðaraðstoð, fóru inn á Gaza fyrstu vikuna. Allt er þetta gert til að mæta gríðarlegri þörf rúmlega milljón barna á svæðinu sem hafa mátt þola 15 mánuði af árásum.
Í flutningabílunum er vatn, hreinlætisvörur, næringarfæði, hlý föt, segldúkar fyrir tjöld og önnur lífsnauðsynleg mannúðaraðstoð. Hafa bifreiðarnar komið bæði úr norðri og suðri þar sem UNICEF ásamt samstarfsaðilum dreifir þeim til fjölskyldna sem á þurfa að halda.
Að störfum allan sólarhringinn
Rúmlega 2 milljónir einstaklinga eru á Gaza og þar af er helmingurinn börn sem öll hafa búið við gríðarlegan skort á nauðsynjum frá upphafi árása. Skemmdir sem hafa verið unnar á mikilvægum innviðum eins og vegum, sjúkrahúsum, heimilum og skólum eru gríðarlegar.
„Teymi okkar vinna allan sólarhringinn að því að skala upp nauðsynlega mannúðaraðstoð, sérstaklega til þeirra svæða sem ekki var hægt að ná til fyrir vopnahlé vegna skorts á aðgengis eða annarra áskorana,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF í tilkynningu í dag. „Teymi UNICEF halda áfram að hitta fyrir börn í mikilli neyð. Þetta vopnahlé hefur reynst þeim léttir, en á sama tíma eru fjölskyldur að snúa aftur til svæða þar sem þau áður bjuggu sem hafa verið lögð gjörsamlega í rúst. Allt tekur þetta sinn toll á líkama og sál og ristir djúpt.“
Í tilkynningu UNICEF segir stofnunin sé á vettvangi og klár í að skala upp viðbragð sitt en frekar en mikilvægt sé að alþjóðasamfélagið fylgi með í stuðningi sínum og fjárhagslegum stuðningi við aðgerðir.
50 flutningabílar á dag
UNICEF stefnir á að koma 50 vöruflutningabílum af hjálpargögnum á dag inn á Gaza í þessum fyrsta fasa vopnahlésins og þegar hefur hundruð vörubretta af neyðargögnum verið komið fyrir á landamærum Gaza-strandar. Og meira er á leiðinni til að tryggja nauðsynlega aðstoð við þau svæði sem forgangsraðað hefur verið eftir því hvar þörfin er mest.
Þjónusta við börn og fjölskyldur er meðal annars sálrænn og sálfélagslegur stuðningur, auk þess sem verið er að stórauka vatns-, hreinlætis- og næringarþjónustu á vettvangi. UNICEF leggur áherslu á að útvega bóluefni og styðja við teymi til að tryggja nauðsynlega bólusetningu barna sem farið hafa á mis við þá þjónustu og þannig hindra útbreiðslu sjúkdóma. Skimun og meðhöndlun á vannæringu, stuðningur við nýburadeildir á sjúkrahúsum- sérstaklega í norðri er einnig hluti af aðgerðaáætlun UNICEF, sem og aukinn stuðningur við aukna vatnsframleiðslu, barnavernd, fræðsla til barna og fjölskyldna um hættur ósprunginna sprengja á jörðu niðri og tryggja aðgengi barna að menntun.
Forgangsraða í þágu barna og öllum gíslum verði sleppt
„Þetta vopnahlé veitir glugga til að gera að þeim bráðavanda sem börn og fjölskyldur glíma við og og vonum að það sé upphafið að langvarandi frið,“ segir Russell. Það er mikilvægt að ná að viðhalda flæði mannúðaraðstoðar inn á Gaza og að öllum sem vinna að því að tryggja þá mikilvægu aðstoð sé tryggt öruggt og óhindrað aðgengi til að mæta þessari miklu þörf.“
UNICEF kallar sem fyrr eftir því að alþjóðasamfélagið forgangsraði í þágu barna í þessum fyrstu aðgerðum og tryggi að mannúðarstofnanir séu vel fjármagnaðar og að leiðir til að veita nauðsynlega aðstoð opnar og öruggar.
UNICEF fagnar því að 12 börnum hafi verið sleppt úr haldi í Ísrael, sem og ungmennum sem fyrst voru hneppt í varðhald sem börn. UNICEF kallar eftir endalokum þess að börn séu hneppt í varðhald, sama hvaða nafni slíkar aðgerðir eru kallaðar. UNICEF kallar sömuleiðis eftir því enn á ný að öllum gíslum sem eru í haldi á Gaza verði sleppt, sérstaklega börnunum tveimur sem eftir eru.
Það er bráðnauðsynlegt að allir aðilar standi og og virði samkomulagið um vopnahlé sem og skyldur sínar gagnvart alþjóðalögum. Þessum jákvæðu skrefum í rétta átt verður að viðhalda, í þágu allra barna.