15. júní 2020

WHO og UNICEF: Tugþúsundir barna gætu látið lífið vegna áhrifa COVID-19 á heilbrigðisþjónustu

„Heimsfaraldur COVID-19 er að setja fordæmalaust álag á heilbrigðiskerfi á svæðinu. Grunnheilbrigðisþjónusta hefur dregist saman eða raskast verulega í fjölmörgum löndum,“

15. júní 2020 „Heimsfaraldur COVID-19 er að setja fordæmalaust álag á heilbrigðiskerfi á svæðinu. Grunnheilbrigðisþjónusta hefur dregist saman eða raskast verulega í fjölmörgum löndum,“ segja Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í M-Austurlöndum og N-Afríku, og Dr. Ahmed Al-Mandhari, svæðisstjóri Austur-Miðjarðarhafsstarfsemi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), í sameiginlegri yfirlýsingu í dag.

Chaiban og Mandhari segja að þrátt fyrir að ekki hafi greinst mörg tilfelli af COVID-19 í börnum á svæðinu þá sé augljóst mál að heimsfaraldurinn sé að hafa veruleg bein áhrif á börn í þessum heimshluta.

„Við áætlum að 51.000 börn undir fimm ára aldri gætu dáið fyrir árslok 2020 sérstaklega vegna þessa ef núverandi truflanir á lífsnauðsynlegri heilbrigðis- og næringarþjónustu dregst á langinn og vannæring eykst meðal barna,“ segir í yfirlýsingu stofnananna.

Fyrir mátti gera ráð fyrir að 133 þúsund börn undir fimm ára aldri muni láta lífið á svæðinu á næstu sex mánuðum. Með þessari aukningu gætu dauðsföllin því orðið alls 184 þúsund.

„Ef þetta gerist þá yrði það aukning um 40 prósent í samanburði við fyrir COVID-19 faraldurinn. Þetta myndi einnig þýða gríðarlega afturför í þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn barnadauða á svæðinu síðustu tvo áratugi.“

Nokkrir samverkandi þættir geta leitt til þessarar skelfilegu niðurstöðu, segja Chaiban og Mandhari. Mannekla og gríðarlegt álag heilbrigðisstarfsmanna og skortur á gögnum, tækjum og tólum. Lokanir, ferðatakmarkanir og efnahagshömlur draga einnig úr aðgengi íbúa að heilsugæslu. Síðan auðvitað ótti við smit sem gerir það að verkum að mæður og börn eiga á hættu að verða af mikilvægri þjónustu á borð við bólusetningu, meðhöndlun á sýkingum í nýburum og hinum ýmsu barnasjúkdómum, meðgönguvernd og sængurleguþjónustu og næringaraðstoð.

„En við getum sloppið við þessa skelfilegu sviðsmynd og hjálpað tugþúsundum barna að fagna fimm ára afmæli sínu með ástvinum og fjölskyldu. Við getum kallað eftir breytingum og staðfest þannig að UNICEF og WHO eru staðráðin í styðja við heilbrigðiskerfi í þessum heimshlutum og grípa til eftirfarandi aðgerða:

  • Bólusetningar- og næringarverkefni verði örugglega komið á að fullu með tilheyrandi varúðarráðstöfunum gagnvart smithættu og viðeigandi sóttvörnum.
  • Forgangsraða og hafa milligöngu um aðgengi að grunnheilbrigðisþjónustu fyrir öll börn, sérstaklega þau sem verst standa og eru berskjölduð. Til þess þarf mannskap og hjálpargögn.
  • Útvega þarf neyðarteymum í það minnsta lágmarksbúnað til smitvarna, eins og hlífðarfatnað og hreinlætisvörur.
  • Fjárfesta þarf í skilvirkri opinberri upplýsingagjöf til samfélaganna til að auka traust á heilbrigðiskerfið og hvetja fjölskyldur til að leita sér aðstoðar ef eitthvað kemur upp á.

UNICEF vinnur hörðum höndum að því í þessum viðkvæmu löndum að koma í veg fyrir smit COVID-19 og frekari útbreiðslu með sóttvörnum. Styrktu neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi og gefðu vatn og sápu með því að senda sms-ið SÁPA í 1900 (1.900 kr).
Þú getur líka styrkt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi hér.

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn