Réttindaliðið
#fyriröllbörn
Ég tek afstöðu gegn fordómum og mismunun!
Ein af meginstoðum Barnasáttmálans er bann við mismunun. Með undirskrift minni geng ég í Réttindaliðið og með því fordæmi ég mismunun sem börn á Íslandi og um allan heim verða fyrir á grundvelli kynþáttar, kyns, kynhneigðar, fötlunar, tungumáls, trúar eða efnahagslegrar stöðu fjölskyldunnar. Ég heiti því að koma fram við öll börn af virðingu, hvort heldur sem er í eigin persónu eða á netinu. Auk þess skora ég á:
- Stjórnvöld: að efla mannréttindafræðslu í samfélaginu öllu með markvissum hætti
- Fyrirtæki og félagasamtök: að vera talsmenn jafnræðis og fjölbreytileika
- Almenning: að taka þátt í því að vernda börn gegn hvers kyns mismunun og fordómum
Börn krefjast aðgerða og það er skylda okkar að hlusta og standa með þeim!
*Við munum taka saman og afhenda stjórnvöldum undirskriftirnar með ákalli okkar.
Skrifaðu undir og skráðu þig í
Réttindalið UNICEF
Skráðu þig í Réttindalið UNICEF
Lærðu um
réttindi barna