02. mars 2022

Krónan styrkir neyðarsöfnun UNICEF fyrir Úkraínu

Krónan hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Úkraínu.

Páll Valur með verðlaunin.

2. mars 2022 Krónan hefur ákveðið að bjóða viðskiptavinum sínum að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Úkraínu. Verður viðskiptavinum boðið að bæta 500 krónum við innkaup sín í verslunum og Snjallverslun Krónunnar sem renna til söfnunarinnar og mun Krónan svo jafna hvert framlag.

„Við hjá UNICEF á Íslandi erum stolt og þakklát fyrir einstakt samstarf við Krónuna. Þau þekkja hversu mikilvæg og umfangsmikil verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, eru í þágu barna í Úkraínu. Við vitum að framtakið mun mælast vel fyrir hjá viðskiptavinum Krónunnar og vonum að það verði öllum hvatning til að leggja sitt af mörkum,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Krónan hefur áður reynst UNICEF á Íslandi mikilvægur bakhjarl í fjáröflunarverkefnum. Í fyrra söfnuðust rúmar 8,3 milljónir króna í sambærilegu framtaki hjá Krónunni og viðskiptavinum hennar til að tryggja dreifingu á bóluefni við COVID-19 til efnaminni ríkja.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur um árabil verið á vettvangi í Úkraínu á ófriðartímum í austurhluta landsins að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð. UNICEF er nú á vettvangi stríðsátaka að tryggja hreint vatn, hjálpargögn, skólagögn, félags- og sálfræðiþjónustu og fjárhagsaðstoð. Milljónir barna eru nú í skotlínu stríðsátaka og staða þeirra versnar með hverri mínútunni. UNICEF ítrekar ákall sitt um vopnahlé, að lífi óbreyttra borgara og nauðsynlegum innviðum verði hlíft, að alþjóðalög um að vernd barna í stríði séu virt og öruggt aðgengi hjálparstofnana til mannúðarstarfs á vettvangi verði tryggt.

Neyðarsöfnun fyrir börn í Úkraínu er í fullum gangi. Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar um styrktarleiðir hér á vef UNICEF á Íslandi.









Fleiri
fréttir

20. desember 2024

Opnunartími skrifstofu um hátíðarnar
Lesa meira

19. desember 2024

BM Vallá og UNICEF á Íslandi undirrita samstarfssamning til þriggja ára 
Lesa meira

18. desember 2024

UNICEF: Börn í Sýrlandi þurfa frið
Lesa meira
Fara í fréttasafn