29. október 2019

Sprengingar ásækja börnin: „Þessi minning mun alltaf elta okkur“

„Það féll sprengja við húsið okkar og sú upplifun ásækir fjögurra ára son minn. Hann man allt sem gerðist, hljóðið í sprengjuvörpunum og sprengingarnar,“ segir Awaz Subhi, þriggja barna móðir sem flúði bæinn Kobani í norðausturhluta Sýrlands þegar Tyrkir gerðu innrás þann 9. október síðastliðinn.

„Það féll sprengja við húsið okkar og sú upplifun ásækir fjögurra ára son minn. Hann man allt sem gerðist, hljóðið í sprengjuvörpunum og sprengingarnar,“ segir Awaz Subhi, þriggja barna móðir sem flúði bæinn Kobani í norðausturhluta Sýrlands þegar Tyrkir gerðu innrás þann 9. október síðastliðinn.

Sjö þúsund sýrlenskir flóttamenn, þar af helmingur þeirra börn, hafa flúið átökin yfir í kúrdíska hérað Íraks. Nær öll þeirra komu fótgangandi, þjökuð af líkamlegum og andlegum raunum þess sem gerst hefur.

„Meira að segja þegar börnin leika sér þá eru þau að endurgera og endurupplifa árásirnar. Þessi minning mun alltaf elta okkur,“ segir Awaz sorgmædd.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ung fjölskylda hennar þverar landamærin milli Sýrlands og Írak sem flóttafólk. Þau komu fyrst til Íraks árið 2014 þegar þau flúðu ISIS og héldu þá til í Erbil, höfuðborg kúrdíska héraðsins í Írak, í ellefu mánuði. Þau snéru aftur heim eftir það. Nú hafa þau enn á ný verið rifin upp með rótum í skugga stríðsátaka.

„Ég vil frið og öryggi fyrir börnin mín. En það er erfitt að ímynda sér að lífið verði nokkru sinni aftur eðlilegt,“ segir Awaz í samtali við fulltrúa UNICEF í Írak. Í orðum hennar er ekki uppgjöf en það er merkjanleg þreyta. Þreyta þess sem upplifað hefur og séð allt of mikið af stríðsátökum um ævina.

„Við náum vart andanum. Líf okkar hafa verið eyðilögð.“

UNICEF og samstarfsaðilar eru að veita neyðaraðstoð og bjarga lífum viðkvæmra hópa við landamæri Sýrlands og Írak á hverjum degi. UNICEF dreifir vatni og nauðsynjum til flóttafólks áður en þau eru flutt í búðir þar sem þau fá skjól, mat, vatn og frekari nauðsynjar og fá heilsufarsskoðun.

Dalil Suliman hefur svipaða sögu að segja og Awaz.

„Loftárásirnar hófust að nóttu til og héldu áfram til morgun. Um leið og færi gafst seldi ég mótorhjólið mitt og borgaði smyglara, því sem nemur 50 þúsund krónur, fyrir að koma okkur út,“ segir Dalil en hann flúði Ras Ain ásamt fimm manna fjölskyldu sinni.

„Börnin reyndu að vera hugrökk þegar við gengum að landamærunum. En þau eru farin að skilja hvað stríð þýðir,“ bætir hann við.

Það er mikið á þau lagt, börnin sem neyðst hafa til að leggja í þetta ferðalag af illri nauðsyn, segir Hamida Lasseko, fulltrúi UNCIEF í Írak. Eitt helsta verkefni UNICEF á svæðinu er að reyna að endurheimta eins eðlilegt ástand og mögulegt er fyrir börnin.

„Við þurfum að finna viðkvæmustu börnin, meðal annars þau sem orðið hafa viðskila við forráðamenn á flótta,“ segir Lasseko.

UNICEF hefur það sem af er fundið níu fylgdarlaus börn á Sahela-landamærunum nærri Duhok og Ninewah. Sex þeirra hafa þegar verið sameinuð fjölskyldum sínum, haft hefur verið upp á fjölskyldu tveggja til viðbótar og bíða þau þess að vera sameinuð á ný. Enn á eftir að finna fjölskyldu eins barnanna.

UNICEF hefur sett upp og heldur áfram að setja upp, barnvæn svæði í þessum flóttamannabúðum, veita sálrænan stuðning og tímabundin kennslusvæði svo börn geti haldið áfram að nýta sér rétt sinn á menntun sinni. Skólaárið var nýhafið hjá meirihluta þeirra þegar innrás Tyrkja í Sýrland var gerð.

Til að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma hefur UNICEF einnig unnið að því að bólusetja öll börn undir fimmtán ára aldri fyrir mænusótt og mislingum.

Til að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Sýrlandi sendu SMS-ið STOPP í númerið 1900. (1.900 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950

Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.

Fleiri
fréttir

06. maí 2024

UNICEF: 600 þúsund börn eru hvergi óhult í Rafah
Lesa meira

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira
Fara í fréttasafn