04. október 2021

Yfirlýsing UNICEF vegna aðgerða stjórnvalda í Eþíópíu

UNICEF hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar ákvörðunar stjórnvalda í Eþíópíu að vísa fulltrúa UNICEF, sem og öðrum yfirmönnum Sameinuðu þjóðanna, úr landi. Er ákvörðunin sögð bæði sorgleg og mikið áhyggjuefni.

Börn og fullorðnir þurfa að ferðast í allt að 10 tíma til að komast að næstu uppsprettu vatns sem má finna í Qacha Chalu í miðri Eþíópíu. Vatnið er bæði heitt og salt en þetta er það eina sem er í boði fyrir bæði dýr og menn.

4. október 2021 UNICEF hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar ákvörðunar stjórnvalda í Eþíópíu að vísa fulltrúa UNICEF, sem og öðrum yfirmönnum Sameinuðu þjóðanna, úr landi. Er ákvörðunin sögð bæði sorgleg og mikið áhyggjuefni.

„UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur haft starfsstöð í Eþíópíu í rúm 60 ár og á þeim tíma unnið ötullega að því að auka og verja réttindi barna í landinu. Nú þegar aðstæður fólks í landinu versna, og börn bera þar mestan skaða af, er starf okkar mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við eru fullviss um að teymin sem starfa á vettvangi við að bjarga lífi barna vinni þar sem fyrr með hlutleysi, mannúð og sjálfstæði að leiðarljósi. Vinna okkar þar mun halda áfram. Okkar helsta og eina forgangsatriði er að styðja við börn sem á aðstoð þurfa að halda, hvar svo sem þau eru.“

Stjórnvöld í Eþíópíu tilkynntu fyrir helgi að sjö yfirmönnum Sameinuðu þjóðanna í landinu, þar af frá UNICEF, hefði verið vísað úr landi fyrir „afskiptasemi að innanríkismálum.“ Var það gert í kjölfar þess að Sameinuðu þjóðirnar lýstu yfir áhyggjum af því að vegatálmar stjórnvalda hindruðu nauðsynlegt hjálparstarf í landinu og ógnuðu fæðuöryggi hundruð þúsunda í Tigray-héraði. Mikil átök í norðurhluta Eþíópíu að undanförnu og mannúðarkrísa sem þeim hefur fylgt, hefur vakið hörð viðbrögð frá alþjóðasamfélaginu

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn