09. febrúar 2022

Veturinn harður og átökin aukast: Börnin í Sýrlandi þurfa hjálp

Veturinn hefur verið óvenju harður í Sýrlandi og tugþúsundir barna í norðurhluta landsins hafast nú við í tjöldum, neyðarskýlum og tímabundnu húsnæði meðan frostharkan slær víða met. Bara síðustu tvær vikur hafa að minnsta kosti fimm börn látið lífið í norðvesturhluta landsins vegna kuldans.

UNICEF dreifir 16 tonnum af hjálpargögnum í bænum Moadamiyeh, sem haldið hefur verið í herkví.

9. febrúar 2022 Veturinn hefur verið óvenju harður í Sýrlandi og tugþúsundir barna í norðurhluta landsins hafast nú við í tjöldum, neyðarskýlum og tímabundnu húsnæði meðan frostharkan slær víða met. Bara síðustu tvær vikur hafa að minnsta kosti fimm börn látið lífið í norðvesturhluta landsins vegna kuldans.

Harðnandi átök, með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu, í landshlutanum hafa enn aukið þeirra neyð. UNICEF á Íslandi leitar nú eftir þínum stuðningi til að tryggja þessum börnum hlý föt, öruggt skjól, lífsnauðsynlega þjónustu og réttindi í baráttu við náttúruöflin og aðstæður í heimalandinu, sem þau eiga enga sök á.

Klukkan tifar fyrir börnin í norðurhluta Sýrlands og hver dagur skiptir máli. Hvert framlag gerir gagn.

Á síðasta ári:

  • Náði UNICEF 87% af markmiði sínu í dreifingu vetrarfatnaðar og fengu 109.178 börn í flóttamannabúðum, tímabundnum skýlum og öðrum viðkvæmum byggðum og aðstæðum vetrarpakka.
  • Veitti UNICEF 11,3 milljónum manna í Sýrlandi mannúðaraðstoð, þar af 7,3 milljónum barna.
  • Jókst fjöldi fólks sem þarf á mannúðaraðstoð að halda úr 11,1 milljón manna árið 2020 í 13,4 milljónir árið 2021. Þessi aukning var drifin áfram að efnahagskrísu, auknum átökum í norðvesturhluta landsins sem og víðar, fjölda fólks á flótta innanlands, almannaþjónustu sem er í lamasessi og ekki síst áhrifa heimsfaraldurs COVID-19.
  • Fengu 1,5 milljónir Sýrlendinga bólusetningu við COVID-19.

Í lok árs 2021:

  • Þurftu 6.080.000 börn á mannúðaraðstoð að halda.
  • Þurftu alls 13.400.000 á mannúðaraðstoð að halda í Sýrlandi.
  • Eru 6.700.000 manns á flótta innanlands.
  • Búa 2.565.766 börn á svæðum sem erfitt er að ná til.

Þú getur hjálpað

Nú eru næstum 11 ár síðan stríðið í Sýrlandi hófst. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur veitt milljónum barna frá Sýrlandi neyðaraðstoð síðan stríðið hófst. Það hefði ekki verið hægt án víðtæks stuðnings almennings um allan heim, þar á meðal á Íslandi – bæði frá Heimsforeldrum og þeim sem stutt hafa neyðarsöfnunina okkar.

Þú getur hjálpað með að senda SMS-ið STOPP í númerið 1900 til að gefa 1.900 kr. í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Sýrland.

Frekari upplýsingar og styrktarleiðir má finna hér á heimasíðu okkar.

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn