07. mars 2022

UNICEF kemur 62 tonnum af hjálpargögnum til Úkraínu

Um helgina komu sex fullestaðir flutningabílar frá UNICEF til Lviv í vesturhluta Úkraínu með alls 62 tonn af hjálpargögnum. Sendingin kemur frá alþjóðlegu vöruhúsi UNICEF í Kaupmannahöfn.

7. mars 2022 Um helgina komu sex fullestaðir flutningabílar frá UNICEF til Lviv í vesturhluta Úkraínu með alls 62 tonn af hjálpargögnum. Sendingin kemur frá alþjóðlegu vöruhúsi UNICEF í Kaupmannahöfn.

Meðal hjálpargagna eru hlífðarfatnaður fyrir heilbrigðisstarfsfólk, margvísleg sjúkragögn, þar á meðal lyf, skyndihjálparpakkar, ljósmóðurpakkar og tæki og búnaður til skurðaðgerða svo fátt eitt sé nefnt. Hátt í 20 þúsund hlý teppi og vetrarfatnaður fyrir börn eru þá einnig á leið til Úkraínu í gegnum Pólland frá vöruhúsi UNICEF í Tyrklandi.

„Staða barna og fjölskyldna í Úkraínu versnar með hverjum degi. Þessi hjálpargögn munu hjálpa okkur að veita konum, börnum og heilbrigðisstarfsfólki nauðsynlega aðstoð,“ segir Murat Sahin, fulltrúi UNICEF í Úkraínu.

Síðan átök hörðnuðu í Úkraínu hafa fjölskyldur neyðst til að leggjast á flótta eða leita skjóls neðanjarðar án aðgengis að nauðsynlegri þjónustu. Heilbrigðisstofnanir hafa þurft að færa starfsemi sína í kjallara og skýli. Um allt landið eru hundruð þúsunda án vatns og þá er farið að bera á lyfjaskorti sem og skorti á öðrum nauðsynlegum sjúkragögnum.

„UNICEF vinnur allan sólarhringinn að því að skala upp neyðaraðstoð í Úkraínu og undirbúning frekari aðgerða þegar til hömlum og öryggisráðstöfunum verður aflétt svo hægt verði að nálgast og veita íbúum aðstoð sem búa á svæðum sem verst urðu úti,“ segir Sahin.

UNICEF vinnur einnig þrotlaust að því að mæta þörfum barna og fjölskyldna á flótta yfir landamæri nágrannaríkja. Partur af því er að koma upp barnvænum svæðum, svokölluðum Bláum punktum (e. Blue Dots) á flóttaleiðum þar sem fólk á flótta fær aðstoð, nauðsynjar og ráðgjöf.

UNICEF ítekar nú sem fyrr ákall sitt um vopnahlé í Úkraínu svo mannúðarstofnanir geti sinnt vinnu sinni og náð til þeirra sem á þurfa að halda. Vopnahlé myndi einnig gefa fjölskyldum færi á að sækja mat, vatn, læknisaðstoð eða flýja í öryggi á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur um árabil verið á vettvangi í Úkraínu á ófriðartímum í austurhluta landsins að veita nauðsynlega mannúðaraðstoð. UNICEF er nú á vettvangi stríðsátaka að tryggja hreint vatn, hjálpargögn, skólagögn, félags- og sálfræðiþjónustu og fjárhagsaðstoð.

Neyðarsöfnun fyrir börn í Úkraínu er í fullum gangi. Hægt er að nálgast allar frekari upplýsingar um styrktarleiðir hér á vef UNICEF á Íslandi.

Fleiri
fréttir

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira
Fara í fréttasafn