19. október 2021

UNICEF í Jemen: Fjögur börn drepin eða limlest á hverjum degi síðan átök hófust

Börn hafa verið drepin í sprengjuárásum á heimili sín, skóla eða heilsugæslur og misst útlimi við að stíga á jarðsprengjur.

„Átökin í Jemen hafa náð enn einum ömurlegum hápunktinum: Að minnsta kosti 10 þúsund börn hafa verið drepin eða limlest síðan átök hófust í mars 2015. Það jafngildir fjórum börnum á hverjum degi,“ sagði James Elder, talsmaður UNICEF fyrir Jemen, á blaðamannafundi í Genf fyrr í dag. Börn hafa verið drepin í sprengjuárásum á heimili sín, skóla eða heilsugæslur og misst útlimi við að stíga á jarðsprengjur. Þessi tíu þúsund börn eru einungis þær tölur sem Sameinuðu þjóðirnar hafa fengið staðfestar og ætla má að raunveruleg tala sé mun hærri.

Mannúðarkrísan í Jemen er ein sú versta í heiminum í dag þar sem ofbeldisfull og langvinn átök, efnahagshrun, fátækt, hungur og brostnir innviðir setja meira en 11 milljónir barna í landinu í hættu. Á sama tíma og verulega hefur dregið úr alþjóðlegum fjárstuðningi til neyðaraðgerða í landinu hefur þörfin aldrei verið meiri:

  • Fjögur af hverjum fimm börnum í landinu þarfnast neyðaraðstoðar;
  • 400 þúsund börn eru í lífshættu vegna alvarlegrar bráðavannæringar;
  • Meira en tvær milljónir barna eru ekki í skóla;
  • Tveir þriðju kennara hafa ekki fengið greidd reglubundin laun í meira en fjögur ár;
  • 1,7 milljónir barna eru á vergangi innan Jemen vegna ofbeldisins. Fleiri fjölskyldur leggja nú á flótta eftir því sem átök aukast í kringum borgina Marib.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er á staðnum og vinnur með samstarfsaðilum við að hjálpa þeim börnum og fjölskyldum sem þurfa lífsnauðsynlega aðstoð. Sem dæmi má nefna að UNICEF styður börn sem þurfa meðferð við alvarlegri bráðavannæringu á meira en 4,000 heilsugæslustöðvum í Jemen, við tryggjum hreint vatn til yfir 5 milljóna manna og höfum hjálpað 620 þúsund börnum að halda áfram menntun á þessu ári. 1,5 milljón heimili fá fjárstuðning í hverjum ársfjórðungi og við þjálfum heilbrigðisstarfsfólk sem getur veitt þjónustu í afskekktum dreifbýlum. Að auki veitir UNICEF börnum sem hafa lent í áföllum sálrænan stuðning, fræðum börn og fjölskyldur um hættur vegna jarðsprengja og aðstoðum börn sem hafa slasast eða misst útlimi vegna átakanna.

Elder segir að ekki sé hægt að ofmeta alvarleika neyðarástandsins í Jemen þar sem landsframleiðsla hefur hrunið um 40% síðan átök hófust, mikill fjöldi hefur misst vinnuna sína og stór hluti opinberra starfsmanna, þar á meðal læknar, kennarar og hreinlætisstarfsfólk, fær ekki reglubundin laun. Elder lýsir því að hafa hitt kennara og barnalækna, sem þrátt fyrir að hafa ekki fengið greidd laun í langan tíma, mæta áfram í vinnuna til að bjarga vannærðum börnum og tryggja rétt barna til menntunar. Þau færa fórnir á hverjum degi og selja eignir sínar til að eiga fyrir mat fyrir börnin sín.

„Börnin í Jemen svelta ekki vegna skorts á mat – þau svelta vegna þess að fjölskyldur þeirra eiga ekki efni á mat. Þau svelta vegna þess að fullorðnir halda áfram stríði þar sem börn eru stærstu fórnarlömbin,“ segir Elder.

Til þess að UNICEF og önnur hjálparsamtök geti náð til allra þeirra barna sem þurfa hjálp þarf nauðsynlega að auka alþjóðlegan fjárstuðning.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börnin í Jemen er alltaf í gangi og hægt er að hjálpa með því að senda SMS-ið JEMEN í 1900 (1900 krónur) eða gefa frjálst framlag hér.

Fleiri
fréttir

20. desember 2024

Opnunartími skrifstofu um hátíðarnar
Lesa meira

19. desember 2024

BM Vallá og UNICEF á Íslandi undirrita samstarfssamning til þriggja ára 
Lesa meira

18. desember 2024

UNICEF: Börn í Sýrlandi þurfa frið
Lesa meira
Fara í fréttasafn