20. september 2021

UNICEF: Tryggja þarf jafnan rétt stúlkna til náms í Afganistan

UNICEF fagnar því að skólar séu að opna aftur víða í Afganistan eftir að hafa verið lokaðir svo mánuðum skiptir vegna COVID-19. Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, segir þó mikið áhyggjuefni ef skilja á stúlkur eftir í þeirri ákvörðun.

20. september 2021 UNICEF fagnar því að skólar séu að opna aftur víða í Afganistan eftir að hafa verið lokaðir svo mánuðum skiptir vegna COVID-19. Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, segir þó mikið áhyggjuefni ef skilja á stúlkur eftir í þeirri ákvörðun.

„Við höfum miklar áhyggjur af því hversu margar stúlkur fá ekki að snúa aftur til náms núna. Það má ekki gerast að stúlkur verði skildar eftir. Það er algjörlega nauðsynlegt að stúlkur, þar með taldar eldri stúlkur, fái að halda menntun sinni áfram án tafa. Til að það gerist þurfum við kvenkyns kennara aftur til starfa,“ segir Fore í yfirlýsingu sinni.

Bendir hún á að fyrir núverandi mannúðarkrísu í Afganistan hafi 4,2 milljónir barna ekki verið skráð í skóla. 60 prósent þeirra voru stúlkur.

„Hver dagur sem stúlkur eru sviptar rétti sínum til menntunar er glatað tækifæri fyrir þær, fjölskyldur þeirra og samfélög.“

Menntamál í Afganistan hafa tekið þónokkrum framförum síðustu tvo áratugi. Fjöldi skóla hefur þrefaldast og námsmönnum fjölgað úr einni milljón í 9,5 milljónir.

„Þetta eru mikilvægar umbætur fyrir afgönsk börn sem við verðum að sýna virðingu og verja. UNICEF hvetur til að réttur allra barna til náms í Afganistan verði virtur. UNICEF mun halda áfram baráttu sinni og réttindagæslu til að tryggja jafnan rétt stúlkna og drengja til náms og tækifæra í friðsælu og uppbyggilegu Afganistan,“ segir Fore að lokum.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn