25. september 2020

Átök, hamfarahlýnun og kórónaveiran ógna heilsu kvenna og barna

Samkvæmt nýrri skýrslu sem UNICEF, WHO og UNFPA gefa út í dag eru þær framfarir sem átt hafa sér stað í að bæta hag kvenna og barna í heiminum síðastliðinn áratug í mikilli hættu vegna átaka, hamfarahlýnunar og nú kórónaveirunnar.

Samkvæmt nýrri skýrslu Protect the Progress: Rise, Refocus, Recover, 2020 sem UNICEF, WHO og UNFPA gefa út í dag eru þær framfarir sem átt hafa sér stað í að bæta hag kvenna og barna í heiminum síðastliðinn áratug í mikilli hættu vegna átaka, hamfarahlýnunar og nú kórónaveirunnar.

Skýrslan áréttar að mikill árangur hefur náðst í því að bæta heilsu kvenna, barna og ungmenna í heiminum síðastliðin 10 ár. Sem dæmi má nefna að dauðsföll barna undir fimm ára aldri náðu sögulegu lágmarki árið 2019 og meira en einn milljarður barna fengu bólusetningar síðastliðinn áratug. Mæðradauði hefur lækkað um 35% frá árinu 2000, en mesti árangurinn hefur átt sér stað síðan 2010. Enn fremur er talið að það hafi náðst að koma í veg fyrir um 25 milljón barnahjónabönd síðustu 10 árin.

Nú blasir hinsvegar við viðkvæm staða þar sem átök, óstöðugleiki í loftslagsmálum og heimsfaraldur kórónaveirunnar setja heilsu og vellíðan allra barna og ungmenna í hættu. Kórónaveirufaraldurinn hefur raskað lífi barna og fjölskyldna um allan heim og meðal annars haft neikvæð áhrif á tækifæri barna til náms Þegar skólar þurftu að loka til að hefta útbreiðslu veirunnar í vor hafði það áhrif á menntun 1,6 milljarða barna í 192 löndum og er hætta á að ójöfnuður aukist enn frekar. Aukning hefur orðið í heimilisofbeldi og misnotkun gegn stúlkum og konum og eins hefur fátækt og hungur í heiminum aukist.

Rótgróin misskipting

Í skýrslunni er kafað ofan í þann mikla ójöfnuð sem blasir við í heiminum, ójöfnuð sem heldur áfram að svipta konur, börn og ungmenni réttindum sínum. „Það á ekki að skipta máli hvar í heiminum þú fæðist, en því miður er það svo að rótgróin misskipting hefur áhrif á það hvort börn lifi af fyrstu ár ævi sinnar,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, kynningarstjóri UNICEF á Íslandi. „Sem dæmi má nefna að árið 2019 dóu 5,2 milljónir barna og 1 milljón ungmenna af orsökum sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir og 82% dauðsfalla barna yngri en fimm ára voru í Afríku sunnan Sahara og í Suður-Asíu. Það sýnir skýrt hvað misskiptingin er mikil milli heimshluta.“

Í skýrslunni kemur fram að níu af hverjum 10 börnum sem smitast af HIV-veirunni eru fædd í Afríku sunnan Sahara og að á hverjum degi eru 33 þúsund stúlkur neyddar í hjónaband, yfirleitt með mun eldri mönnum. Þar kemur einnig fram að dánartíðni mæðra, nýbura, barna og ungmenna er mun hærri í löndum þar sem hafa verið langvarandi átök.

„Milljónir barna sem búa á átakasvæðum og í öðrum viðkvæmum aðstæðum standa frammi fyrir enn meiri erfiðleikum á meðan heimsfaraldur geysar,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Við þurfum að vinna saman að því að koma tafarlaust til móts við grunnþarfir fólks á sama tíma og við styrkjum heilbrigðiskerfi. Aðeins þá getum við verndað og bjargað mannslífum.“

Virða þarf alþjóðlegar skuldbindingar

Heimsfaraldur kórónaveirunnar hefur skapað aðstæður sem geta grafið undan árangri síðustu ára og því mikilvægt að konur, börn og ungmenni séu vernduð gegn þeim ógnum og ójöfnuði sem skapast ef ekkert er að gert. Án aukinna viðbragða til að berjast gegn barnadauða þá gætu 48 milljónir barna yngri en fimm ára dáið á næsta áratugnum. Ætla má að næstum helmingur þessara dauðsfalla væru nýburar.

Með skýrslunni fylgir ákall til alþjóðasamfélagsins um að taka höndum saman gegn áhrifum kórónaveirunnar um leið og staðið er við alþjóðlegar skuldbindingar um að bæta líf kvenna og barna.

Skýrslan, og helstu niðurstöður hennar, verður kynnt þann 25. september. Hægt er að fylgjast með kynningunni hér.

Fleiri
fréttir

20. nóvember 2024

UNICEF: Framtíð barnæskunnar hangir á bláþræði í breyttum heimi 
Lesa meira

20. nóvember 2024

Ungmenni fá orðið á Alþjóðadegi barna: „Kæra fullorðna fólk– Hlustið á okkur“
Lesa meira

18. nóvember 2024

Þúsund dagar af stríði í Úkraínu: 16 börn drepin eða særð í hverri viku
Lesa meira
Fara í fréttasafn