03. mars 2020

Nú er tíminn til að tryggja börnum öruggt aðgengi að alþjóðlegri vernd

Ekkert eitt ríki getur annað flóttamannastraumnum frá Sýrlandi og öll Evrópa þarf að standa við bakið á Grikklandi og Tyrkjum sem undanfarin ár hafa tekið móti gríðarmiklum fjölda fjölskyldna á flótta. Ekkert barn ætti að þurfa að stefna lífi sínu í voða í leit að öryggi.

3. mars 2020 Ekkert eitt ríki getur annað flóttamannastraumnum frá Sýrlandi og öll Evrópa þarf að standa við bakið á Grikklandi og Tyrkjum sem undanfarin ár hafa tekið móti gríðarmiklum fjölda fjölskyldna á flótta. Ekkert barn ætti að þurfa að stefna lífi sínu í voða í leit að öryggi. Þetta segir Afshan Khan, yfirmaður UNICEF í Evrópu og Mið-Asíu og flóttamannahjálparinnar í Evrópu, í yfirlýsingu vegna skelfilegrar stöðu sem komin er upp við landamæri Tyrklands og Grikklands sem og víðar. Tyrkir ákváðu á dögunum að hætta að verja landamæri og hleypa sýrlensku flóttafólki áfram í gegn til Evrópu. Erdogan Tyrklandsforseti sagði Evrópuþjóðir verða að axla sinn hluta flóttamannabyrðarinnar.

Þúsundir flóttafólks og hælisleitenda hafa síðan lagt á sig hættulegt ferðalag og er áætlað að 13 þúsund séu nú við landamæri Grikklands. Í gær drukknaði drengur þegar bát sem hann og tugir flóttamanna voru í hvolfdi undan ströndum grísku eyjarinnar Lesbos.

„Þessar fregnir eru sorgleg áminning um það hættulega ferðalag sem yngstu flóttamennirnir og hælisleitendurnir eru að leggja á sig í leit að öryggi í Evrópu,“ segir Khan.

„Hvort sem er á sjó, við landamæri eða átakasvæðunum sem þau eru að flýja þá eru börnin alltaf fyrstu fórnarlömbin. Á síðustu vikum hafa 575 þúsund börn mátt flýja harðnandi átök í norðvesturhluta Sýrlands. Af þeim þúsundum sem nú halda til nærri Edirne og meðfram landamærum Tyrklands og Grikklands er áætlað að 40 prósent séu konur og börn. Ríki verða að tryggja öryggi hinna saklausu,“ bætir Khan við í yfirlýsingu sinni vegna ástandsins.

Hún bendir á að UNICEF og samstarfsaðilar séu á vettvangi að bregðast við bráðavanda og neyða barna með því að útvega þeim skjól, vatn, hreinlætisvörur, teppi og önnur hjálpargögn.

„Við erum líka að aðstoða fólkið sem nú er strandað við landamæri Tyrklands og Búlgaríu þar sem fregnir berast af hörðum móttökum.“

Börn og fjölskyldur sem flúið hafa heimili sín líta til þjóðarleiðtoga eftir sameiginlegri lausn að sögn Khan. Hún segir að til þurfi fjárhagslegan og pólitískan stuðning við ríki sem taki á móti fólki í neyð og raunverulegt átak þurfi til að flytja viðkvæmasta hópinn í öryggi.

„Nú er stundin fyrir allar þjóðir sem að málum koma að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar og verja börnin, sama hvaðan þau koma. Líf þeirra er að veði. Nú er tími til kominn að tryggja þeim öruggt aðgengi að hæli og alþjóðlegri vernd, í stað þess að grípa til aðgerða og yfirlýsinga sem ala á fordómum og útlendingaandúð,“ segir Khan harðorð.

„Nú er líka tími til kominn að Evrópu sýni Grikklandi og Tyrklandi samstöðu. Þessar þjóðir hafa tekið móti mjög stórum hópum barna og fjölskyldna. En ekkert eitt ríki nær utan um þetta verkefni óstutt. Öll ríki njóta góðs af samvinnu til að vernda börn og fjölskyldur. Börn eru viðkvæm fyrir en börn á flótta þurfa nauðsynlega á vernd að helda. Ekkert barn ætti að þurfa að hætta lífi sínu og framtíð í leit að öryggi.“

Við minnum á áframhaldandi neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Sýrlandi. Sendu SMS-ið TEPPI í númerið 1900 (1.400 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950 eða hér á vefsíðu UNICEF á Íslandi.

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn