05. maí 2021

Jemen þolir enga bið: Án aðstoðar hefði Monira ekki lifað af

Hundruð þúsunda barna eru í hættu vegna vannæringar í Jemen og þeim fjölgar sífellt vegna ástandsins í landinu sem heldur fjölskyldum í heljargreipum fátæktar og hungurs.

„Við höfðum misst alla von um að hún myndi lifa mikið lengur eftir að heilsu hennar hrakaði mjög hratt,“ segir faðir hinnar þriggja ára gömlu Moniru sem náði bata af alvarlegri vannæringu og veikindum henni tengd. Monira býr á Ashyab-svæðinu í Jemen ásamt fjölskyldu sinni.

Síðastliðna sjö mánuði hefur hún verið í lífshættu vegna vannæringar og veikinda en blessunarlega var hægt að ná til hennar og meðhöndla með næringarfæði á borð við vítamínbætt jarðhnetumauk, líkt og því sem UNICEF útvegar vannærðum börnum í Jemen og um allan heim.

Hundruð þúsunda barna eru í hættu vegna vannæringar í Jemen og þeim fjölgar sífellt vegna ástandsins í landinu sem heldur fjölskyldum í heljargreipum fátæktar og hungurs.

„Monira var hætt að geta hreyft sig og leikið við önnur börn,“ rifjar faðir hennar upp. „Hamingjan var horfin úr augum hennar og líkaminn var veikburða. Við upplifðum algjört bjargleysi. Við gátum ekki uppfyllt hennar grunnþarfir. Ég hafði ekki efni á að koma henni á spítala og fá almennilega hjálp fyrir hana. Ég hef verið atvinnulaus lengi vegna stríðsins og hef ekki getað brauðfætt fjölskyldu mína. Ef teymið frá heilbrigðisstofnuninni í Al-Hayma hefði ekki sótt okkur heim, væri dóttir mín dáin núna.“

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur gleðin snúið aftur í augu Moniru sem leikur nú við hvern sinn fingur. En við megum ekki sofna á verðinum. Saga Moniru er saga flestra barna í Jemen.

UNICEF hefur veitt neyðaraðstoð, næringu, menntun og heilbrigðisþjónustu í Jemen um árabil og þrátt fyrir gríðarlega erfiðar aðstæður hefur náðst mikill árangur. En ástandið er viðvarandi og verkefninu má líkja við langhlaup. Þú getur hjálpað UNICEF að ná til þeirra 12 milljóna jemenskra barna sem þurfa á neyðaraðstoð að halda. Þú getur hjálpað UNICEF að næra þau hundruð þúsunda barna sem áætlað er að muni þjást af lífshættulegri bráðavannæringu í landinu í ár. Hvert líf og öll börn skipta máli.

Jemen þolir enga bið.

Sendu SMS-ið JEMEN í númerið 1900 til að gefa 1.900 kr. til stuðnings börnunum í Jemen. Sú upphæð jafngildir ríflega 37 skömmtum af næringarríku jarðhnetumauki sem gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Margt smátt fyrir okkur gerir mikið í Jemen.

Einnig er hægt að millifæra upphæð að eigin vali á neyðarreikning UNICEF fyrir Jemen. Bankanúmer:

701-26-102050 Kt. 481203-2950.

Þá tökum við sömuleiðis við AUR greiðslum í gegnum númerið: 123 787 2332 eða með því að skrifa @jemen.

Allt um neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir Jemen HÉR.

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn