16. ágúst 2021

Gífurlegt tjón á Haítí og börn í hættu

Ljóst er að mikið mannfall og gífurlegt tjón hefur orðið eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir suðvesturhluta Haítí um helgina. Það er með hjálp Heimsforeldra sem UNICEF getur brugðist hratt við þegar neyðarástand skapast líkt og á Haítí.

Ljóst er að mikið mannfall og gífurlegt tjón hefur orðið eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir suðvesturhluta Haítí um helgina. Tala látinna er komin yfir 1200, spítalar eru yfirfullir af slösuðu fólki og fjölda manns er enn saknað í rústunum. Þúsundir heimila, skóla og mannvirkja eru ónýt. Það sem gerir stöðuna enn verri er að búist er við að hitabeltislægðin Grace fari yfir Haití í dag og á morgun með mikilli rigningu, flóðum og óveðri sem getur aukið enn frekar skemmdirnar af völdum jarðskjálftans og gert allt björgunarstarf erfiðara.

Íbúar á Haítí eru enn að jafna sig eftir jarðskjálftann sem varð fyrir 11 árum og staða barna í landinu hefur verið slæm lengi. Pólitískur óstöðugleiki, ofbeldi, vannæring og útbreiðsla COVID-19 ógnar lífi barna í landinu og því mikilvægt að bregðast hratt við þeirri vaxandi neyð sem nú hefur skapast af völdum jarðskjálftans.

UNICEF er á staðnum og vinnur með stjórnvöldum og samstarfsaðilum að meta aðstæður og skipuleggja hjálparstarf. Búið er að koma neyðarbirgðum til þeirra svæða sem urðu verst úti og meiri hjálpargögn eru á leiðinni til þeirra fjölmörgu barna og fjölskyldna sem þurfa nú lífsnauðsynlega aðstoð, til að mynda öruggt skjól, hreint vatn, mat og læknisaðstoð.

Það er með hjálp Heimsforeldra sem UNICEF getur brugðist hratt við þegar neyðarástand skapast líkt og á Haítí og verið til staðar fyrir börn og fjölskyldur þeirra hvar sem er í heiminum. Þú getur skráð þig sem Heimsforeldri UNICEF hér.

Fleiri
fréttir

11. september 2026

Hættur og hindranir vofa yfir börnum sem snúa nú aftur í skóla á Vesturbakkanum
Lesa meira

10. september 2026

Loftslagshættur röskuðu námi 170 milljóna nemenda á síðasta ári
Lesa meira

08. september 2026

UNICEF og stjórnvöld í Venesúela hefja endurbætur á vatnsveitukerfum
Lesa meira
Fara í fréttasafn