22. mars 2022

Forsetahjónin settu átak UNICEF „Heimsins bestu foreldrar“

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid settu formlega Heimsforeldraátak UNICEF á Íslandi á Bessastöðum í dag. Átakið ber yfirskriftina „Heimsins bestu foreldrar“ og afhenti Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, forsetahjónunum kaffikönnur merktar yfirskrift átaksins sem einmitt er innblásið af ýmiskonar gjafavöru sem börn færa foreldrum sínum við hin ýmsu tækifæri.

22. mars 2022 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid settu formlega Heimsforeldraátak UNICEF á Íslandi á Bessastöðum í dag. Átakið ber yfirskriftina „Heimsins bestu foreldrar“ og afhenti Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, forsetahjónunum kaffikönnur merktar yfirskrift átaksins sem einmitt er innblásið af ýmiskonar gjafavöru sem börn færa foreldrum sínum við hin ýmsu tækifæri. Átakið mun svo ná hápunkti sínum í glæsilegum söfnunar- og skemmtiþætti sem verður í beinni útsendingu á RÚV, laugardagskvöldið 2. apríl næstkomandi, undir yfirskriftinni „Heimsins mikilvægasta kvöld.“

Við hvetjum öll, sem á því hafa tök, að styrkja starf Unicef í þágu barna í heiminum. Margt smátt gerir eitt stórt,“ sögðu forsetahjónin Guðni og Eliza sem sjálf hafa verið Heimsforeldrar UNICEF um árabil. Íslendingar eiga einmitt heimsmet í fjölda Heimsforeldra en hátt í 25 þúsund manns styðja starf UNICEF með mánaðarlegum framlögum. Markmið átaksins nú er að fjölga enn frekar í þessum heimsmetshópi enda stuðningur Heimsforeldra aldrei verið jafn mikilvægur.

Ný framlög fyrstu þrjá mánuðina renna til Úkraínu

Áhrif heimsfaraldurs Covid-19 hefur komið verst niður á börnum og hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, lýst því sem stærstu áskorun í sögu sinni að vinna upp það sem glatast hefur í réttindabaráttu barna síðustu tvö árin á heimsvísu. En mánaðarleg framlög Heimsforeldra tryggja getu UNICEF til að vera til staðar þar sem neyðin er, og sveigjanleika til að bregðast skjótt við þegar ófriður og skálmöld skella á. Rétt eins og kom á daginn í Úkraínu í síðasta mánuði.

Í átakinu sem hófst formlega í dag munu framlög nýrra Heimsforeldra næstu þrjá mánuði renna beint til starfs UNICEF vegna ástandsins í Úkraínu. En gleymum þó ekki að UNICEF er með starfsemi í yfir 190 löndum og á vettvangi margra stríða þar sem gætt er að réttindum barna. Í öllum þessum verkefnum skiptir hvert framlag máli.

Í átaki þessu er lögð áhersla á þrautseiga bjartsýni, von og lausnir. Markmiðið er að sýna hvernig stuðningur Heimsforeldra styður við starf UNICEF um allan heim við að vera vonin og lausnin á svo mörgum vandamálum sem að börnum steðja,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Hægt er að skrá sig sem Heimsforeldri á heimasíðu UNICEF á Íslandi: unicef.is

Styrktaraðilar átaksins eru: Vodafone, Lindex og Kvika banki.

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn