08. október 2020

Ertu að deyja úr hungri?

Í gær hrintu nokkur ungmenni af stað samfélagsmiðlaáskoruninni „Deyja úr hungri“ sem er átak til að styðja neyðaraðgerðir UNICEF fyrir börn í Jemen.

Í gær hrintu nokkur ungmenni af stað samfélagsmiðlaáskoruninni „Deyja úr hungri“ sem er átak til að styðja neyðaraðgerðir UNICEF fyrir börn í Jemen. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og nú þegar hefur fjöldi fólks tekið áskorun hópsins í gegnum Instagram-síðuna @deyjaurhungri og saman náð að safna hundruðum þúsunda fyrir börn í neyð í Jemen á einum sólarhring.

„Við erum nokkur ungmenni sem fylgdumst með því hvernig Covid-19 gerði aðstæður í Jemen margfalt verri, sérstaklega hvað varðar mataröryggi. Það er eðlilegt að við á Íslandi höfum mestar áhyggjur af eigin lífsafkomu, t.d. atvinnuleysi og verðhækkunum, en við megum samt ekki gleyma hvað við höfum það ótrúlega gott miðað við löndin sem stóðu þegar höllum fæti fyrir heimsfaraldurinn,“ segir Sara Mansour, talsmaður hópsins sem stendur að framtakinu.

Jemen má ekki gleymast

Ástandið í Jemen er skelfilegt og talið er að 80% íbúa þurfi á mannúðaraðstoð að halda, þar af eru 12 milljónir þeirra börn. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, áætlar að tvær milljónir barna í Jemen glími við bráðavannæringu, þar af glíma 325 þúsund börn undir fimm ára aldri við alvarlega bráðavannæringu. Auk þess er áætlað að 1,2 milljónir óléttra kvenna eða kvenna með barn á brjósti séu alvarlega vannærðar.

Sara segir að þau hafi ekki viljað að Jemen myndi týnast í umræðunni. Það sé hrikalegt að horfa uppá milljónir lifa við hungur og að áskorunin sé þeirra leið til að vekja athygli á neyðinni og gefa almenningi auðvelda leið til að hjálpa. Hópurinn tók saman matseðil með nokkrum vinsælum réttum, svo sem borgara og bjór, miðstærð af pizzu, bulsu og gos og hægt er að taka áskoruninni með því að sleppa máltíð af matseðlinum og gefa andvirði hennar til Jemen.

„Að „deyja úr hungri“ er eitthvað sem við erum alltaf að segja, en sannleikurinn er sá að fæst okkar vita hvernig það er að vera virkilega svöng og hafa ekki aðgang að mat. Þannig datt okkur í hug nafnið og áskorunin. Við vildum líka sýna fram á hvað peningurinn sem við eyðum í mat er verðmætur, en fyrir andvirði pulsu og kók er til dæmis hægt að kaupa 15 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki fyrir vannærð börn. UNICEF er alltaf á framlínunni, og það lá því beinast við að styrkja starf þeirra,‘‘ segir Sara.

Söfnunin fer fram í gegnum AUR-aðgang UNICEF á Íslandi @Jemen eða á neyðarsíðu samtakanna fyrir Jemen. Fólk er einnig hvatt til að deila vali sínu í Insta-story frá síðu átaksins @deyjaurhungri á Instagram.

Fleiri
fréttir

29. apríl 2024

Bútan fær lof fyrir frábæran árangur í bólusetningum barna
Lesa meira

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira
Fara í fréttasafn