05. október 2020

Ef Jemen væri 100 börn...

Hvað ef ástandið í Jemen væri 100 börn? Þá þyrftu 85 þeirra nauðsynlega á mannúðaraðstoð að halda, 70 þeirra hefðu ekki aðgang að sápu, 60 þeirra hefðu ekki nægan aðgang að vatni og 42 þeirra væru í hættu á alvarlegri vannæringu. Þetta eru sláandi tölur.

5. október 2020 Hvað ef ástandið í Jemen væri 100 börn? Þá þyrftu 85 þeirra nauðsynlega á mannúðaraðstoð að halda, 70 þeirra hefðu ekki aðgang að sápu, 60 þeirra hefðu ekki nægan aðgang að vatni og 42 þeirra væru í hættu á alvarlegri vannæringu. Þetta eru sláandi tölur.

Stundum er vandinn það stór að það hjálpar okkur að setja hann í minna samhengi. Staðreyndin er hins vegar sú að í Jemen búa 30,5 milljónir manna og 80 prósent þeirra þarf á neyðaraðstoð að halda. Þar af 12,2 milljónir barna, nærri fjögur af hverjum fimm börnum. Þá eru 1,7 milljón barna á vergangi innanlands. Og þetta eru bara tölurnar sem Sameinuðu þjóðirnar hafa getað staðfest. Rauntölurnar frá átökunum í Jemen og þessari verstu mannúðarkrísu í veröldinni, eru án nokkurs vafa miklu mun hærri.

Frá 26. mars 2015 til 31. ágúst 2020 hafa:

  • 3.218 börn verið myrt.
  • 5.884 börn særst.
  • 3.495 börn verið svipt sakleysi sínu og gert að taka upp vopn og berjast.
  • 462 árásir verið gerðar á skóla, eða þeir nýttir í hernaðarlegum tilgangi.
  • 170 árásir verið gerðar á heilbrigðisstofnanir eða þær nýttar í hernaðarlegum tilgangi.
  • Barnahjónbönd aukist. Tvær af hverjum þremur stúlkum undir 18 ára aldri voru giftar árið 2017.

En þú getur hjálpað.

Milljónir barna vannærð

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, áætlar að tvær milljónir barna í Jemen glími við bráðavannæringu, þar af glíma 325 þúsund börn undir fimm ára aldri við alvarlega bráðavannæringu. Auk þess er áætlað að 1,2 milljónir óléttra kvenna eða kvenna með barn á brjósti séu alvarlega vannærðar. 12 milljónir Jemena, þar af 2 milljónir barna, reiða sig á mataraðstoð til að lifa af.

Tæplega 18 milljónir manna, þar af tæplega 9,6 milljónir barna, hafa ekki aðgang að hreinu og öruggu vatni né hreinlætisaðstoð. Raunar hefur aðeins þriðjungur Jemena aðgang að vatnsveitukerfi.

Ástandið er sem fyrr skelfilegt en UNICEF er sem fyrr í framlínunni við að veita lífsnauðsynlega neyðaraðstoð í landinu með stuðningi fólks eins og þín.

Árangur UNICEF í Jemen á árinu 2020

  • Menntun: Tæplega 380 þúsund börn hafa fengið námsgögn og rúmlega 44 þúsund börn fengið aðgang að formlegri og óformlegri menntun. Rúmlega 114 þúsund kennarar og skólastarfsfólk hafa fengið stuðning til að halda áfram að sinna starfi sínu.
  • Heilbrigðismál: Nærri 1,4 milljónir barna undir fimm ára aldri fengu nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum sem UNICEF hefur stutt uppbyggingu á. 341.295 börn á fyrsta ári voru bólusett gegn mislingum og rúmlega 1,1 milljón barna undir fimm ára aldri voru bólusett gegn lömunarveiki.
  • Næring: Nærri 112 þúsund börn undir fimm ára fengu lífsnauðsynlega meðhöndlun við vannæringu og rúmlega 1,1 milljón barna fengu meðhöndlun á annars konar næringarskorti eins og vítamín- og steinefnaskorti.
  • Hreinlæti: Rúmlega fjórar milljónir manna fengu aðgang að nægjanlegu magni af öruggu og hreinu drykkjarvatni. Rúmlega milljón manns fengu hreinlætispakka.
  • Réttindabarátta barna: Rúmlega 302 þúsund börn og forráðamenn á átakasvæðum fengu félags- og sálfræðiþjónustu og rúmlega 240 þúsund börn og aðrir fullorðnir fengu fræðslu um jarðsprengjuhættu. Þá náðum við til þúsunda barna og kvenna með úrræði tengdum kynbundnu ofbeldi.

Þetta er aðeins brot af því helsta. UNICEF gefst aldrei upp og þrátt fyrir hið risavaxna verkefni sem ástandið í Jemen er þá mun UNICEF halda áfram baráttu sinni fyrir heilsu, velferð og réttindum allra barna í Jemen.

UNICEF á Íslandi hefur um árabil staðið fyrir neyðarsöfnun fyrir þessum verkefnum og fyrir börn í Jemen sem nú þurfa þína hjálp sem aldrei fyrr.

Sendu sms-ið JEMEN í númerið 1900 til að styðja neyðaraðgerðir UNICEF um 1.900 krónur.


Þú getur líka stutt neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi með frjálsu framlagi hér.

Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn