09. maí 2019

Dansað fyrir neyðarhjálp UNICEF í Mósambík

Meira en 2 milljónir barna eiga nú um sárt að binda eftir fellibylina tvo sem skullu á Mósambík í síðasta mánuði. Gífurleg neyð ríkir á svæðinu og UNICEF hefur sérstakar áhyggjur af smitsjúkdómum á borð við kóleru sem geta breiðst hratt út við neyðaraðstæður sem þessar. UNICEF leggur allt kapp á að útvega hreint drykkjarvatn, útdeila vatnshreinsitöflum og fór af stað með bólusetningarátak gegn kóleru sem nær til 900 þúsund manns.

Dansaðu fyrir lífinu! hefst klukkan 11:30 í World Class Laugum á laugardaginn og er öllum opinn meðan pláss leifir.

„Miðað við hve margir mættu á síðasta viðburð þá gerum við ráð fyrir allt að 100 manns núna,” segir Friðrik Agni skipuleggjandi Zumbagleðinnar Dansaðu fyrir lífinu! sem haldin verður í World Class Laugum á laugardaginn. Hér er á ferð kraftmikill viðburður til styrktar UNICEF. Friðrik Agni og fleiri sprækir Zumbakennarar leiða danstíma þar sem aðgangseyrir rennur til neyðaraðgerða UNICEF í Mósambík. Síðast fór ágóði viðburðarins til neyðarhjálpar barna í Sýrlandi en nú mun söfnunarféð renna til uppbyggingar og neyðarhjálpar í Mósambík eftir tvo mannskæða fellibyli þar í landi.

„Ég safnaði saman flestum Zumbakennurunum í World Class til að vera með og það má búast við heilmikilli partýstemningu, orku og gleði. Í Zumba er dansað við glaðværa og kraftmikla tónlist svo fólk getur ekki annað en komist í gott skap. Svo er það auðvitað tilgangurinn með þessum viðburði, að bæta líf barna sem þurfa hjálp, sem ég held að láti fólki einnig líða vel,“ segir Friðrik.

Ég fékk hugmyndina að Dansaðu fyrir lífinu jólin 2017 þegar ég rakst á auglýsingu frá UNICEF þar sem kallað var eftir hjálp vegna ástandsins í Sýrlandi. Ég hugsaði með mér að mig langaði til að leggja mitt af mörkum. Helst hefði ég viljað fara til Sýrlands og huga að þessum börnum persónulega en ég gat að minnsta kosti sett saman viðburð þar sem hægt var að styrkja UNICEF í krafti fjöldans sem er svo gríðarlega mikilvægt. Mér fannst eitthvað fallegt við að sameina þessa ástríðu fyrir dansinum og andlegri heilsu og að gefa af sér til þessa málefnis.”

Meira en 2 milljónir barna eiga nú um sárt að binda eftir fellibylina tvo sem skullu á Mósambík í síðasta mánuði. Gífurleg neyð ríkir á svæðinu og UNICEF hefur sérstakar áhyggjur af smitsjúkdómum á borð við kóleru sem geta breiðst hratt út við neyðaraðstæður sem þessar. UNICEF leggur allt kapp á að útvega hreint drykkjarvatn, útdeila vatnshreinsitöflum og fór af stað með bólusetningarátak gegn kóleru sem nær til 900 þúsund manns.

„ Við hvetjum alla til þess að mæta, sameinast í Zumba og láta gott af sér leiða á sama tíma. Þannig gerum við okkur sjálfum og öðrum gott.“ segir Friðrik Agni að lokum.

Dansaðu fyrir lífinu! hefst klukkan 11:30 í World Class Laugum á laugardaginn og er öllum opinn meðan pláss leifir. Gestir geta valið að styrkja um 1000, 2000 eða 3000 krónur.

Þau sem ekki komast að dansa en vilja styðja málefnið geta sent SMS-ið BARN í 1900 og gefa þannig 1900 krónur í neyðaraðgerðir UNICEF í Mósambík.

Á hverju ári bregst UNICEF við neyðarástandi í yfir 50 löndum. Snögg viðbrögð eru lífsnauðsynleg þegar neyðarástand brýst út. Neyðarsjóður UNICEF gerir okkur kleift að bregðast samstundis við þegar hamfarir verða einsog í sunnanverðri Afríku. Einnig er hægt er að styðja neyðaraðgerðir UNICEF hér.

Fleiri
fréttir

26. apríl 2024

Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld 
Lesa meira

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira
Fara í fréttasafn