27. febrúar 2020

Börn og kennarar létust í árásum á skóla og leikskóla í Idlib

Að minnsta kosti níu börn og þrír kennarar létu lífið í árásum á tíu skóla og leikskóla í Idlib í Sýrlandi í gær. Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, fordæmir árásirnar og segir fólk orðlaust yfir ofbeldinu.

27. febrúar 2020 Að minnsta kosti níu börn og þrír kennarar létu lífið í árásum á tíu skóla og leikskóla í Idlib í Sýrlandi í gær. Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku, fordæmir árásirnar og segir fólk orðlaust yfir ofbeldinu.

„Enn eina ferðina erum við slegin yfir þessu miskunnarlausa ofbeldi sem gengur hér yfir og varð til þess að níu börn og þrír kennarar létu lífið í árásunum í gær,“ segir Chaiban í yfirlýsingu.

„Að minnsta kosti fjórir þessarar skóla nutu stuðnings samstarfsaðila UNICEF. Samkvæmt nýjustu upplýsingum særðust hátt í 40 konur og börn í þessum árásunum.“

Rúmlega hálf milljón barna í norðvesturhluta Sýrlands hefur neyðst til að flýja heimili sín síðan 1. desember síðastliðinn. Tugþúsundir barna og fjölskyldur þeirra búa nú í tjöldum og undir berum himni nú þegar vetrartíð með snjó og slæmu veðri er gengið í garð. Átökin í norðurhéruðum hafa versnað undanfarið, en líkt og greint var frá á dögunum er staðfest að 77 börn hafi látið lífið eða særst í átökum í norðvesturhluta Sýrlands það sem af er árinu. Og eru þá þau börn sem létust og særðust núna undanskilin.

„Við fordæmum harkalega morð og limlestingar á börnum. Skólar og aðrar menntastofnanir njóta friðhelgi og eiga að vera öruggir staðir fyrir börn. Árásir á þær er gríðarlega alvarlegt brot á réttindum barna. Stríðandi fylkingum í Sýrlandi ber að vernda börn og ber að láta af árásum á stofnanir og mikilvæga innviði,“ segir Chaiban að lokum.

Við minnum á áframhaldandi neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Sýrlandi. Þú getur gert þitt til að fæða og klæða börnin í tjöldunum köldu. Sendu SMS-ið TEPPI í númerið 1900 (1.400 kr.)

Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950.

200 mjúkdýr af öllum stærðum og gerðum voru afhend.
Fleiri
fréttir

24. apríl 2024

Bólusetningar hafa bjargað 2,500 lífum ung- og smábarna á Íslandi
Lesa meira

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira
Fara í fréttasafn