12. febrúar 2019

119 börn leyst undan hermennsku í Suður - Súdan

Í dag, á alþjóðadegi gegn barnahermennsku, voru 119 börn leyst undan hermennsku í Yambio, Suður-Súdan, þar á meðal 48 stúlkur. Yngsta barnið var 10 ára. Alls hafa yfir 3.100 börn verið leyst úr haldi vígahópa síðan átök brutust út í landinu árið 2013.

12. febrúar. 2019

Í dag, á alþjóðadegi gegn barnahermennsku, voru 119 börn leyst undan hermennsku í Yambio, Suður-Súdan, þar á meðal 48 stúlkur. Yngsta barnið var 10 ára. Alls hafa yfir 3.100 börn verið leyst úr haldi vígahópa síðan átök brutust út í landinu árið 2013.

Á sama tíma og þessar fréttir eru gleðilegar minnist UNICEF þeirra barna sem hafa fallið á vígvellinum sem barnahermenn, sýnum samstöðu með þeim börnum sem eru þvinguð til að taka þátt í vopnuðum átökum víða um heim og þrýstum á stríðandi fylkingar að sleppa tafarlaust öllum þeim börnum sem eru enn í haldi vígahópa.

Leysa þarf öll börn úr haldi vígasveita

Á síðasta ári tók UNICEF þátt í að leysa 955 börn undan hermennsku í Suður-Súdan, þar á meðal 265 stúlkur. Alls hafa því yfir 3000 börn í Suður-Súdan verið leyst undan hermennsku frá því að stríðið braust út árið 2013. Stefnt er á að leysa enn fleiri börn úr haldi á þessu ári.

Mörg börnin hafa barist í fjölda ára og enn fleiri hafa aldrei gengið í skóla. Ekki eru öll börnin látin bera vopn, sum eru notuð utan vígvallarins sem sendiboðar, njósnarar eða kokkar og stúlkur jafnt sem drengir eru beitt kynferðisofbeldi. Öll upplifa þau hrylling sem ekkert barn á að þurfa að þola.

UNICEF vinnur með samstarfsaðilum að því að frelsa þessi börn og hjálpa þeim að sameinast fjölskyldum sínum og samfélögum á ný. Það er erfitt verkefni í landi þar sem fjölskyldur hafa hrakist á flótta innan landsins eða flúið átökin yfir til nágrannaríkjanna.

UNICEF veitir börnum sem hefur verið sleppt úr haldi heilsugæslu og sálrænan stuðning, auk nauðsynja á borð við mat, vatn og föt til undirbúa endurkomu þeirra til fjölskyldna sinna. Samfélögum og þorpsbúum í heimkynnum barnanna er einnig veittur stuðningur og fræðsla til að koma í veg fyrir að þau verði fyrir aðkasti þegar þau koma til baka, en einnig til að draga úr líkum á að þau verði aftur tekin inn í vopnaða hópa. Þegar börnin eru tilbúin eru þau studd til að hefja skólagöngu eða starfsþjálfun.

Myndbandið hér er sönn saga barns.

Sem betur fer endar saga James vel, en enn eru a.m.k 19 þúsund börn notuð sem hermenn af herskáum hópum og uppreisnarmönnum í Suður-Súdan. Ástandið er einnig skelfilegt víða þar sem átök hafa geisað í lengri tíma, til dæmis í Sómalíu, Miðafríkulýðveldinu og Afganistan þar sem tugþúsundir barna eru notuð sem barnahermenn.

UNICEF leggur allt kapp við að hjálpa börnum sem hafa verið notuð sem hermenn til að aðlagast samfélögum sínum á nýjan leik. Á sama tíma þrýstir UNICEF á stjórvöld um allan heim að beita sér af enn meiri hörku í að útrýma notkun barna í hernað og mun ekki hætta fyrr en öll börn hafa verið leyst úr haldi.

Fleiri
fréttir

19. apríl 2024

Þrjú börn létust í árásum í Úkraínu
Lesa meira

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira
Fara í fréttasafn