04. febrúar 2020

Slagkraftur þorpsins bjargar öðru barni

Stundum er sagt að það þurfi þorp til að ala upp barn og undanfarna daga hefur Vesturbæjarskóli og nærumhverfi verið það þorp

Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá UNICEF á Íslandi skrifar:

Stundum er sagt að það þurfi þorp til að ala upp barn og undanfarna daga hefur Vesturbæjarskóli og nærumhverfi verið það þorp. Í annað sinn á stuttum tíma sameinast Réttindaskóli UNICEF með börnum á flótta, sem er til marks um mikilvægi þess að fólk læri um réttindi sín og annarra. Þekking er vogarafl gagnvart valdhöfum og með betri þekkingu á mannréttindum fækkar líklega þeim tilvikum þar sem börnum er vísað á brott þegjandi og hljóðalaust.

Í þetta sinn bar samtakamátturinn árangur og ráðherra boðar breytingar, sem er vel. Það er hins vegar orðið þreytt stef, að almenningur þurfi að gæta réttinda barna í kerfinu og að börn þurfi að opinbera líf sitt í fjölmiðlum til að fá áheyrn. Þegar 19 þúsund manns skrifa undir áskorun til stjórnvalda að snúa ákvörðun sinni er það birtingarmynd þess að ekki ríki nauðsynlegt traust.

Í viðbrögðum dómsmálaráðherra horfir hún réttilega til lengdar málsmeðferðartíma, þ.e. hversu langan tíma tekur að fá lokaniðurstöðu í umsókn barns um vernd. Það má ef til vill kjarna stefnu stjórnvalda í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd með einmitt þessum tveimur orðum: stytting málsmeðferðartíma, sem er vissulega mikilvægt hagsmunamál umsækjenda en á sama tíma þarf jafnframt að gæta að gæðum ferlisins. Einn mikilvægur hlekkur í því er að fræða starfsfólk um réttindi barna og búa til formlega verkferla fyrir mat á því sem barni er fyrir bestu.

Þekking á mannréttindum er ekki aðeins mikilvæg almenningi, hún þarf að vera til staðar innan stjórnkerfisins. Ef starfsfólk fær ekki þekkinguna og verkfærin til að vinna að mannréttindum, er ljóst að önnur sjónarmið fá forgang. Við verðum að geta treyst því að réttindi allra barna séu virt, en Barnasáttmálinn er meira í orði en á borði eins og er og því þarf að breyta fyrir öll börn sem sækja um vernd.

Dómsmálaráðherra hefur falið þingmannanefnd um málefni útlendinga að fylgja eftir vinnu varðandi stöðu barna og fólks í viðkvæmri stöðu. Þar þarf að huga að stefnumótun og framkvæmd, með virðingu fyrir réttindum barna að leiðarljósi, og með það í huga að efla réttindamiðaða þekkingu, stefnumótun og verkferla innan stjórnkerfisins.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is 3. febrúar 2020.

Fleiri
fréttir

27. mars 2024

Níu ár af stríði í Jemen: Milljónir barna vannærð
Lesa meira

15. mars 2024

Þrettán ár af stríði í Sýrlandi: UNICEF aðstoðaði milljónir í fyrra en þörfin aldrei meiri
Lesa meira

13. mars 2024

Sögulegur árangur í baráttunni gegn barnadauða
Lesa meira
Fara í fréttasafn