15. október 2019

UNICEF: Slæmt mataræði ógnar lífi og heilsu barna um allan heim

„Hollt og næringarríkt mataræði er hluti af rétt barna til lífs og þroska,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, um nýja skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum þar sem í ár var sérstaklega litið til fæðu og næringar þeirra.

15. október 2019 „Hollt og næringarríkt mataræði er hluti af rétt barna til lífs og þroska,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, um nýja skýrslu UNICEF um stöðu barna í heiminum þar sem í ár var sérstaklega litið til fæðu og næringar þeirra. Í skýrslunni State of the World‘s Children 2019: Children, food and nutrition, segir að það sé mikið áhyggjuefni hversu hátt hlutfall barna glímir nú við afleiðingar lélegs mataræðis og fæðukerfis sem er að bregðast þeim.

„Við, þau fullorðnu, erum að hunsa rétt barna til lífs og þroska of víða og um leið gröfum við undan stoðum styrkra samfélaga framtíðar. Niðurstöður skýrslunnar sýna að allir þurfa að leggjast á eitt við að snúa þessari þróun við, hvort sem um ræðir vannæringu, ofnæringu eða vítamínskort. Velferð komandi kynslóða er í húfi,“ segir Bergsteinn um niðurstöður skýrslunnar.

Skýrslan, sem er umfangsmesta greining á stöðu næringar barna á 21. öld, beinir kastljósinu að því hvernig hugtakið vannæring er að breytast. Vannæring í dag snýst ekki bara um að börn fái ekki að borða heldur fremur um að börn eru ekki að fá rétta fæðu.

Að minnsta kosti eitt af hverjum þremur börnum undir fimm ára aldri, eða rúmlega 200 milljónir barna, eru ýmist vannærð eða of þung. Nærri tvö af hverjum þremur börnum á aldrinum hálfs árs til tveggja ára, eru ekki að neyta þess matar sem þarf til að standa undir þroska þeirra og vexti. Þau eru í hættu á að heilinn þroskist ekki sem skyldi, sem gerir þeim erfiðara fyrir að læra, þau lifa við verra ónæmiskerfi, tíðari sýkingar og í mörgum tilfellum getur það leitt til dauða.

„Þrátt fyrir allar tækni-, menningar- og samfélagsframþróun síðustu áratuga höfum við misst sjónar af grundvallaratriðum í mataræði barna og áhrifa þess á lífsgæði þeirra,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í fréttatilkynningu um skýrsluna.

„Milljónir barna draga fram lífið á óheilbrigðu mataræði einfaldlega af því að þau hafa ekki aðra valkosti. Við þurfum að breyta því hvernig við skiljum og bregðumst við vannæringu. Þetta snýst ekki bara um að gefa börnum nóg að borða, heldur að gefa þeim rétt að borða. Það er sameiginleg áskorun okkar allra í dag.“

Í skýrslunni er lagt ítarlegt mat á vannæringu 21. aldar barna í öllum sínum birtingarmyndum sem eru: Næringarskortur, falið hungur sem samanstendur af skorti á nauðsynlegum vítamínum og næringarefnum og svo ofþyngd meðal barna undir fimm ára aldri. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru:

  • 149 milljónir barna þjást af vaxtarröskun eða eru of lágvaxin miðað við aldur.
  • 50 milljónir barna þjást af rýrnun eða eru of grannvaxin miðað við hæð.
  • 340 milljónir barna, eða annað hvert bar, þjást af skorti nauðsynlegra vítamína og næringarefna á borð við A-vítamín og járn.
  • 40 milljónir barna eru of þung eða í offitu.

Skýrslan varpar einnig ljósi á að þessi þróun byrjar oft þegar börnin eru nýfædd þar sem brjóstagjöf virðist víða á hröðu undanhaldi. Er bent á að aðeins 42 prósent barna undir sex mánaða aldri fá einungis brjóstamjólk. Sífellt fleiri fá þurrmjólk. Þannig hefur sala á þurrmjólk aukist um 72 prósent milli 2008 og 2013 í löndum eins og Brasilíu, Kína og Tyrklandi. UNICEF segir að þessa aukningu megi rekja til villandi markaðssetningu, lélegrar stefnumótunar og upplýsingagjafar um mikilvægi móðurmjólkurinnar.

Þá sé áhyggjuefni að þegar börn eru færð af fljótandi fæði með tíð og tíma þá sé mataræðið ófullnægjandi. Á heimsvísu eru nærri 45 prósent barna á aldrinum sex mánaða til tveggja ára ekki að fá neina ávexti eða grænmeti. Nærri 60 prósent borða engin egg, mjólkurvörur, fisk eða kjöt.

Eitt af stærstu vandamálum nútímans er ofþyng og offita barna og unglinga sem er sífellt að aukast. Frá árinu 2000 til ársins 2016 fór hlutfall of þungra barna á aldrinum 5 til 19 ára úr 1 af hverjum 10 í 1 af hverjum 5. Tíu sinnum fleiri stelpur og 12 sinnum fleiri strákar í þessum aldurshópi þjást af offitu í dag en árið 1975.

UNICEF bendir á í skýrslunni að vannæring af öllu tagi leggist þyngst á fátækari samfélög. Aðeins eitt af hverjum fimm börnum á aldrinum sex mánaða til tveggja ára í fátækustu samfélögunum borða nægilega fjölbreytta fæðu til að vaxa á heilbrigðan og eðlilegan máta. Meira að segja í ríkari samfélögum á borð við Bretland þá er ofþyngd helmingi meiri hjá íbúum á fátækari svæðum en þeim ríkustu.

Í dag er fólki tíðrætt um áhrif loftslagsbreytinga en hafmarir tengdar hlýnun jarðar af mannavöldum auka verulega á matarneyð. Þurrkar eiga sök á 80 prósentum tapaðrar uppskeru í heimunum. Slíkar hamfarir hafa þær afleiðingar í för með sér að sá matur sem stendur fjölskyldum og börnum til boða breytist verulega, að ógleymdum gæðum og verðlagi.

Til að bregðast við þessum vaxandi vanda á heimsvísu skorar UNICEF á stjórnvöld um allan heim, einkageirann, foreldra, fjölskyldur og fyrirtæki til að hjálpa börnum að vaxa heilbrigð úr grasi með því meðal annars að:

  • Valdefla fjölskyldur, börn og ungt fólk til að krefjast næringarríkar fæðu, auka næringarfræðslu og nota þaulreynda löggjöf- á borð við sykurskatta- til að draga úr framboði á óhollri fæðu.
  • Hvetja matarbirgja til að styðja við börn með hvötum til að útvega hollan, einfaldan og ekki of dýran mat.
  • Skapa heilbrigt fæðuumhverfi fyrir börn og ungmenni með leiðum sem vitað er að skila árangri eins og með bættum innihaldslýsingum og merkingum og sterkari aðhaldi við markaðssetningu á óhollum mat

Skýrsluna má nálgast í heild sinni hér í bæði stafrænu og PDF-formi á vef UNICEF.

Fleiri
fréttir

27. mars 2024

Níu ár af stríði í Jemen: Milljónir barna vannærð
Lesa meira

15. mars 2024

Þrettán ár af stríði í Sýrlandi: UNICEF aðstoðaði milljónir í fyrra en þörfin aldrei meiri
Lesa meira

13. mars 2024

Sögulegur árangur í baráttunni gegn barnadauða
Lesa meira
Fara í fréttasafn