UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Áætlað er að 246 milljónir barna séu í ánauð barnaþrælkunar. Af þeim vinnur næstum þriðjungur (171 milljónir) í skaðlegum aðstæðum, þ.e. í námum, vinnur með efni og skordýraeitur í landbúnaði, við hættulegar vélar eða þræla við þjónustu á heimilum.
Milljónir stúlkna vinna sem heimilisþernur og ólaunuð heimilishjálp. Á slíkum vinnustöðum eru þær sérstaklega berskjaldaðar fyrir arðráni og misnotkun. Milljónir annarra barna vinna undir hræðilegum aðstæðum. Þau er seld (1,2 milljónir), þvinguð í ánauð eða annarskonar þrældóm (5,7 milljónir), þvinguð í vændi eða klám (1,8 milljónir), þvinguð til þess að taka þátt í hernaðarátökum (300 þúsund) eða öðrum ólöglegum aðgerðum (600 þúsund). Meirihluti barna, eða 70%, vinnur í landbúnaði.
Nokkrar staðreyndir eftir heimshlutum: