Vissir þú að...

hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!

Þú ert hér:  

Norræn skýrsla um réttindavitund ungs fólks

Skýrslurnar eru tvær og segja frá niðurstöðum könnunar sem gerð var meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund þeirra og viðhorf til hinna ýmsu þátta.

Annars vegar er um að ræða sameiginlega skýrslu um niðurstöður könnunarinnar á öllum Norðurlöndunum með samanburði við hin löndin og hins vegar sér skýrsla um niðurstöðurnar á Íslandi.

Könnunin var gerð frá ágúst 2009 til febrúar 2010. Skýrslurnar voru kynntar af UNICEF á öllum Norðurlöndunum í apríl 2010. UNICEF í Finnlandi hefur gert þessa könnun þrisvar sinnum en þetta er í fyrsta skipti sem hin Norðurlöndin taka þátt.

Markmið könnunarinnar var að ákvarða að hvaða marki hlustað sé á börn og í hvaða málefnum þau vilja helst að hlustað sé á sig. Þar með er varðaður vegur til aukinnar og betri þátttöku barna í daglegu lífi inni á heimilum, í skóla, tómstundastarfi ungmenna og í samfélaginu öllu.

Kannað var hversu meðvitaðir nemendur á efsta stigi grunnskóla, þ.e. 12-16 ára, á Norðurlöndunum eru um réttindi barna og um mannréttindi almennt.  Viðhorf til fjölmiðla, upplýsinga og þátttökuleiða voru skoðuð og hvaða aðferðir þessi aldurshópur nýtir til að hafa áhrif. Markmið könnunarinnar var einnig að safna upplýsingum um viðhorf þátttakenda til umhverfismála og lífsgæða svo eitthvað sé nefnt.

Skýrslurnar má nálgast á pdf-formi hér:
Norræna samanburðarskýrslan um þátttöku og réttindavitund barna
Skýrsla um þátttöku og réttindavitund barna á Íslandi