UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.
Þú ert hér:
Skýrslan Child trafficking in Guinea-Bissau - An explorative study kom út á vegum UNICEF á Íslandi í júní 2010.
UNICEF áætlar að á hverju ári fari fjöldi barna frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu vegna vinnu og trúarlegs náms. Skýrsla þessi byggist á rannsókn sem gerð var að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá til að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða.
Auk þess beindist rannsóknin að öðrum þeim aðstæðum sem hugsanlega mætti flokka sem mansal barna í landinu og með hvaða hætti mætti tryggja réttindi barna.
Rannsóknin er studd af UNICEF á Íslandi, en frá stofnun hafa samtökin stutt við Gíneu-Bissá í Vestur-Afríku á sviði menntunar og heilsu. Skýrsla þessi varpar skýrara ljósi á þann flókna vanda sem blasir við mörgum börnum í Gíneu-Bissá. Í kjölfarið hefur UNICEF í Gíneu-Bissá nýtt niðurstöður skýrslunnar til að veita börnum, fjölskyldum og samfélögum hjáparhönd og tryggja að framkvæmd verkefna sem tengist mansali á börnum hafi raunveruleg og varanleg áhrif.
Höfundar skýrslunnar eru Jónína Einarsdóttir prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, Geir Gunnlaugsson landlæknir, Gunnlaugur Geirrson laganemi og Hamadou Boiro mannfræðingur.
Skýrslan er gefin út á ensku og portúgölsku og dreift hér á landi, í Gíneu-Bissá og víðar. Hana má nálgast á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 176 eða með því að hafa samband við skrifstofuna í síma 552 6300 eða í tölvupósti unicef@unicef.is.