Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Útgefið efni

 

Réttindi barna á Íslandi: Ofbeldi og forvarnir

Réttindi barna: Ofbeldi og forvarnir er ný skýrsla sem kom út i mars 2013.

Ofbeldi gegn börnum hefur afgerandi áhrif á velferð þeirra og eðlilegt er að leita allra leiða til að koma í veg fyrir það. Auk þess að stunda markvissar forvarnir gegn ofbeldi er brýnt að reglulega séu framkvæmdar mælingar á umfangi þess og eðli. Slíkt hefur ekki verið gert hingað til.

 

 

 

 

 

 

Mæling á barnafátækt

Mæling á barnafátækt eða Measuring Child Poverty. New league tables of child poverty in the world‘s rich countries er unnin af rannsóknarmiðstöð UNICEF í Flórens og er sú tíunda í ritröð um stöðu og málefni barna í efnameiri löndum (Report Card 10). Í skýrslunni er gerð tilraun til að skilgreina fátækt meðal barna í efnameiri löndum og mældur hversu stór hluti barna býr við fátækt. 

 Skýrslan kom út í maí 2012.

 

 

 

 

 

 

 

Staða barna á Íslandi 2011

Árið 2011 kom út viðamikil skýrsla um stöðu barna á Íslandi, unnin að fyrirmynd alþjóðlegrar og árlegrar skýrslu The State of the World's Children. Hér var um tímamótaverk að ræða og í fyrsta sinn sem heildstæð samantekt af þessu tagi var gerð um stöðu barna á Íslandi og þær ógnir sem að þeim steðja. Meðal þess sem fram kom í skýrslunni var að engar reglulegar mælingar hafa farið fram hérlendis á tíðni ofbeldis gegn börnum og enginn á vegum hins opinbera ber ábyrgð á forvörnum í þessum málaflokki. UNICEF á Íslandi kallaði í framhaldinu eftir forvörnum í öllum þeim málaflokkum sem tengjast barnavernd.

 

 

 

 

 

 

 

Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses.

Ný skýrsla UNICEF um viðbrögð stjórnvalda við mansali barna í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Noregi og á Íslandi. Í skýrslunni kemur fram að öll löndin hafi sýnt mikla viðleitni til að taka á mansali barna, en að nálganir í aðgerðum gegn mansali geti jafnframt verið of einangraðar sem hefur leitt til þess að mál sumra barna falli ekki innan þröngra skilgreininga og börnin fái þar af leiðandi ekki viðeigandi aðstoð.

 

 

 

 

 

 

Child trafficking in Guinea-Bissau - An explorative study

Höfundar skýrslunnar eru Jónína Einarsdóttir prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, Geir Gunnlaugsson landlæknir, Gunnlaugur  Geirrson laganemi og Hamadou Boiro mannfræðingur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Barnasáttmálinn – Rit um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins með vísun í íslenskt lagaumhverfi.

Ritið má nálgast á skrifstofu UNICEF á Íslandi að Laugavegi 176 og kostar það 1.500 kr. Einnig er hægt að senda póst á unicef@unicef.is eða hringja í síma 552 6300.

Ritstjóri er Þórhildur Líndal.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samnorræn könnun um rétt barna til þátttöku 2009-2010

Gerð var könnun meðal 12-16 ára ungmenna á öllum Norðurlöndunum um þátttöku- og réttindavitund þeirra og viðhorf til hinna ýmsu þátta.

Smellið á myndina til að nálgast skýrsluna.

Hér finnur þú sérstaka úttekt um Ísland í tengslum við könnunina.

 

 

 

 

 

 

 

 Ársskýrslur UNICEF á Íslandi má skoða hér.