Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

UNICEF alþjóðlega

| Mynd 1 af 9 |
Stúlka í flóttamannabúðum í Pakistan býður eftir bólusetningu gegn mænusótt í átaki sem UNICEF stóð fyrir.

 

Í yfir 60 ár hefur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna eða UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar í 190 löndum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.