UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Það er oft sagt að börn og unglingar séu framtíðin. En því miður er það oft þannig að það gleymist að leita eftir sjónarmiðum barna eða þeim ýtt til hliðar þegar móta á stefnu hinna ýmsu málaflokka.
UNICEF og Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt sér fyrir aukinni þátttöku ungs fólks í samfélaginu. Til dæmis má nefna Barnaþing Sameinuðu þjóðanna sem haldið var í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York árið 2002. Á Barnaþinginu tóku börn fullan þátt í fundarhöldunum og ávörpuðu Allsherjarþing og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Börnin komu fram með skapandi lausnir og settu fram sína eigin yfirlýsingu: Heimur fyrir börn (A World Fit for Children).
Stefnumótun og greining er nauðsynlegur hluti af starfi UNICEF þar sem samtökin eru málsvarar barna gagnvart ríkisstjórnum, lögfræðingum, fjölmiðlum, borgaralegu samfélagi og alþjóðasamtökum.
Með því að greina efnahagslegar, félagslegar og lögfræðilegar stefnumótanir fáum við betri skilining á þeim aðstæðum og öflum sem hafa áhrif á velferð barna og kvenna um allan heim. Með þeim greiningum er svo hægt að ákveða hvort nægilegar ráðstafanir eru teknar varðandi til dæmis fátækt, heilsugæslu eða skort á löglegri vernd. Í framhaldinu er hægt að þróa nýja nálgun á stefnumótum og aðgerðir sem geta leitt til bættra efnahagslegra, félagslegra og lýðfræðilegra aðstæðna fyrir börn og konur.
UNICEF skoðar innanlendar og alþjóðlegar stefnur út frá Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Samninginn um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Þessarri greiningu er deilt með samstarfsaðilum UNICEF t.a.m. Barnanefnd Sameinuðu þjóðanna svo að réttindi barna séu miðlæg í stefnumótunum um þróun, að draga úr fátækt og innan stjórnmálalegra afla.
Nánar um réttindi barna, stefnumótun og þátttöku á www.unicef.org.