Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Stjórnlög unga fólksins

Stjórnlög unga fólksins var samstarfsverkefni UNICEF á Íslandi, Reykjavíkuborgar og umboðsmanns barna. Markmiðið var að tryggja að skoðanir íslenskra barna og ungmenna heyrðust við endurskoðun stjórnarskrár íslenska lýðveldisins. Endurskoðun stjórnarskrárinnar var álitið grundvallarmál sem hefði víðtæk áhrif á skipulag samfélagsins í heild sinni. Því væri mikilvægt að leitað væri eftir skoðunum barna og ungmenna.

Í 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir enn fremur að börn eigi rétt á því að hafa áhrif á mál sem þau varða. Taka skuli tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska.

Með þetta að markmiði var vefsíðan www.stjornlogungafolksins.is sett á laggirnar en þar er að finna nýstárleg myndbönd fyrir börn og ungmenni um grunnþætti stjórnarskrárinnar. Þetta eru stutt, teiknuð myndbönd þar sem fjallað er um allt frá framkvæmdavaldi til mannréttinda, forseta og dómsvaldsins, svo eitthvað sé nefnt.

Enn fremur voru útbúin verkefnablöð fyrir öll stig grunnskólans sem og leikskóla.Verkefnin er jafnt ætluð fyrir grunnskóla, leikskóla, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og ungmennaráð.

Á vefsíðu verkefnisins gátu börn og ungmenni ennfremur hlaðið upp eigin skoðunum í tengslum við stjórnarskrána og framtíðarsýn sína.

Laugardaginn 16. apríl 2011 var þing ungmennaráða síðan haldið í Iðnó, Reykjavík. Þangað var fulltrúum ungmennaráða sveitarfélaga boðið til að vinna álit út frá spurningum tengdum umfjöllunarefnum stjórnarskrárinnar. Þátttakendur komu alls staðar af landinu og þingið var afar vel heppnað. Yngsti þingmaðurinn var þrettán ára gamall.

Ungmennin ræddu hvort og hvernig þau myndu vilja að stjórnarskránni yrði breytt – og höfðu mörg sterkar skoðanir á málinu. Fjöldi fólks mætti síðan þegar borðstjórar kynntu helstu niðurstöður af sínu borði.

Að þinginu loknu voru niðurstöður þess teknar saman ásamt því efni sem hlaðið var upp á vefsíðu verkefnisins.

Sett var saman vegleg skýrsla sem síðan var afhent fulltrúum stjórnlagaráðs og Alþingi með pompi og prakt í júní 2011.