þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
Þú ert hér:
Svanhildur Konráðsdóttir tók við stjórnarformennsku hjá UNICEF á Íslandi árið 2010, en þá hafði hún setið í stjórn í þrjú ár. Svanhildur er sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Karl Blöndal starfar sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Hann var meðlimur í fulltrúaráði UNICEF frá árinu 2004 en kom inn í stjórn árið 2006. Árið 2010 var hann kosinn varaformaður stjórnar UNICEF á Íslandi. Karl stundaði nám í stjórnmálafræði við University of Massachusetts í Boston og var fréttaritari Morgunblaðsins í Bandaríkjunum.
Pétur Einarsson, gjaldkeri, tók sæti í stjórn UNICEF á Íslandi vorið 2012. Pétur er forstjóri Straums fjárfestingabanka og hefur fimmtán ára reynslu af fjármálastarfsemi; í banka, fjárfestingaráðgjöf, miðlun og fjármögnun á skipum og flugvélum. Þá hefur Pétur starfað um árabil á sviði sjávarútvegs.
Bragi Guðbrandsson er framkvæmdastjóri Barnaverndarstofu. Hann kom inn í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2009, en hafði áður verið landsnefndinni innan handar með upplýsingar er varða stöðu barna á Íslandi.
Guðrún Ögmundsdóttir er menntaður félagsráðgjafi, auk þess að hafa lokið námi í félagsfræði og fjölmiðlafræði. Hún gegndi þingmennsku um árabil og var áður yfirfélagsráðgjafi á kvennadeild Landspítalans og deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu svo eitthvað sé nefnt. Í dag situr hún í fagráði innanríkisráðuneytisins um kynferðislegt ofbeldi. Guðrún tók sæti í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2011.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjölmiðlakona, hefur átt velgengi að fagna í íslensku sjónvarpi sem þáttastjórnandi Íslands í dag og Kastljóss, svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur lengi látið sig málefni UNICEF varða og tók sæti í stjórn árið 2007. Hún var kosin trúnaðarmaður starfsmanna í stjórn árið 2010.
Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur í Garðasókn tók sæti í stjórn UNICEF á Íslandi árið 2010.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður hefur starfað með UNICEF á Íslandi nánast frá stofnun sem formaður fulltrúaráðs, en hún tók sæti í stjórn árið 2010.
Ragna Sigurðardóttir er fulltrúi ungmennaráðs UNICEF í stjórninni. Hún kom inn í stjórn árið 2011.