Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Vissir þú að ...

  • UNICEF eru stærstu barnahjálparsamtök í heimi og sem slík leggjum við áherslu á að ná til allra barna.
  • UNICEF sinnir bæði langtíma þróunarverkefnum og neyðaraðstoð.
  • UNICEF eru leiðandi í bólusetningum og bólusetur um 100 milljón börn ár hvert. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna um allan heim.
  • UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
  • UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.
  • UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig.
  • Fjármunum UNICEF er ráðstafað eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni. Þegar þörf er metin er meðal annars tekið tillit til tíðni ungbarnadauða og þjóðartekna í tilteknu landi en einnig er litið til hversu mörg börn eru vannærð, hversu mörg börn þurfa á bólusetningum að halda, hve mörg börn eru munaðarlaus vegna HIV/alnæmis og hve stór hluti íbúanna hefur ekki aðgang að hreinu vatni.
  • Árið 2004 bættist UNICEF á Íslandi í hóp 36 landsnefnda sem voru starfandi á vegum UNICEF, en þær sjá um fjáröflun og fræðslu um UNICEF og réttindi barna.
  • 24.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
  • Á 30 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.
  • UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.
  • Þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.
  • Þegar neyð skellur á getur UNICEF brugðist við á innan við 24 klukkustundum.
  • 126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu.
  • Í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
  • Yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.
  • 93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
  • Á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.
  • UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.
  • Á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV.
  • 45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli.
  • Árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
  • UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á.
  • Hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi.