28. júní 2016

Mikilvægt að efla aðgerðir til að ná til verst settu barnanna

Árleg skýrsla UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um stöðu barna í heiminum kemur út í dag. Hún sýnir mikinn árangur og stórbætta stöðu barna, auk þess að varpa skýru ljósi á það hvar gera þarf betur.

Mikill árangur hefur náðst í að draga úr barnadauða, tryggja börnum menntun og vinna gegn fátækt á frá því að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur á Allsherjarþingi SÞ árið 1989. Meira en helmingi færri börn láta lífið fyrir fimm ára aldur en árið 1990, stúlkur og drengir hafa jafnan aðgang að menntun í 129 löndum og nærri helmingi færri búa við sára fátækt í dag en árið 1990.

Bent er á þennan árangur, auk þeirra áskorana sem enn eru framundan, í árlegri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um stöðu barna í heiminum sem kemur út í dag.

„Það er ánægjulegt hvað sést vel á þessu að skipulögð barátta fyrir bættri stöðu barna um allan heim skilar árangri. En það er líka skýrt hvað þarf enn að gera. Skýrslan ætti að vera hvatning til stjórnvalda og annarra sem koma að þróunarmálum að leggjast á árar með okkur til að tryggja öllum börnum jafna möguleika á að lifa góðu lífi,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Í skýrslunni kemur fram að árangrinum sem náðst hefur sé oftar en ekki misskipt. Þótt barnadauði sé í dag meira en helmingi minni á heimsvísu en hann var árið 1990, þá eru fátækustu börnin tvöfalt líklegri til að deyja fyrir 5 ára afmæli sitt en þau sem standa best efnahagslega. Víða í Suður-Asíu og Afríku sunnan Sahara eru börn mæðra sem enga menntun hafa hlotið nærri þrisvar sinnum líklegri til að deyja fyrir 5 ára aldur. Vegna þessarar misskiptingar er mikilvægt að þegar unnið er að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sé sérstök áhersla lögð á að ná sem fyrst til þeirra sem verst standa.

Miðað við þróun mála eins og hún er í dag reiknast höfundum skýrslunnar til að fram til ársins 2030 munu:

• 69 milljón börn undir 5 ára aldri deyja vegna sjúkdóma sem að mestu er auðvelt að lækna.
• 167 milljón börn enn búa við sára fátækt, 90% þeirra í Afríku sunnan Sahara.
• Meira en 60 milljón börn á grunnskólaaldri ennþá vera utan skóla og meira en helmingur þeirra í Afríku sunnan Sahara.
• Nærri 120 milljón börn þjást af vanþroska vegna vannæringar.
• 750 milljón konur verða í hjónaböndum sem þær voru þvingaðar í sem stúlkur.

Skýrslan bendir á að með því að leggja áherslu á viðkvæmustu börnin sé jafnframt verið að styrkja samfélagið til lengri tíma. Svo dæmi sé tekið af aðgerðum til að auka aðgengi barna að menntun, þá eykur hvert ár í skóla tekjur þeirra á fullorðinsaldri um 10%, og fyrir hvert ár sem skólaganga ungmenna lengist að meðaltali lækkar hlutfall fátækra í landinu um 9%.

„Tölurnar sýna að það er ekki hægt að búa við óbreytt ástand. Þegar misskipting hefur svona alvarleg áhrif á líf milljóna barna verðum við að bregðast við. Skýrslan sýnir okkur að það hvílir ekki bara siðferðileg skylda á okkur að grípa til aðgerða, heldur geti þær aðgerðir haft töluverðan efnahagslegan ávinning sem bæti velferð barna og samfélagsins í heild,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Heimsforeldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim. Á Íslandi eru 27.000 heimsforeldrar sem hjálpa UNICEF að þrýsta á um breytingar á heimsvísu.

Hægt er að lesa skýrsluna sem pdf og skoða niðurstöður hennar á gagnvirkri vefsíðu.

Fleiri
fréttir

27. mars 2024

Níu ár af stríði í Jemen: Milljónir barna vannærð
Lesa meira

15. mars 2024

Þrettán ár af stríði í Sýrlandi: UNICEF aðstoðaði milljónir í fyrra en þörfin aldrei meiri
Lesa meira

13. mars 2024

Sögulegur árangur í baráttunni gegn barnadauða
Lesa meira
Fara í fréttasafn