Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Síerra Leóne

Síerra Leóne er í Vestur-Afríku. Það liggur að Norður-Atlantshafi og er með landamæri að Gíneu og Líberíu. Landið var lengi nýlenda Breta en fékk sjálfstæði árið 1961 og varð opinberlega lýðveldi 1971.

Á árunum 1991-2002 geisaði þar borgarastyrjöld sem leiddi til þess að tugþúsundir íbúa týndu lífi og yfir þriðjungur þeirra missti heimili sín.

Síerra Léone er meðal allra fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007/8 er landið í neðsta sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til.

Gríðarlegur fjöldi barna býr við ömurleg skilyrði og fer á mis við stóran hluta þeirra réttinda sem talin eru sjálfsögð annars staðar. Dánartíðni barna er hvergi hærri þar sem fjórðungur til þriðjungur barna deyr áður en fimm ára aldri er náð.

Íbúafjöldi: 5,6 milljónir
Höfuðborg: Freetown
Barnadauði undir 5 ára: 278/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 194/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 48 ár
GDP á mann: 341 USD
Árleg fólksfjölgun: 3,4% 
Íbúar yngri en 18 ára: 2,6 milljónir
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 69%