Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Flóðin

Hið gríðarlega umfang neyðarinnar í Pakistan kemur sífellt betur í ljós. Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa a.m.k. 18 milljónir manna orðið fyrir beinum áhrifum af flóðunum sem koma í kjölfar mikilla monsún-rigninga, þar af um 8 milljónir barna. Af þeim eru um 3,5 milljónir barna í mikilli hættu á að veikjast alvarlega, m.a. af öndunarfærasýkingum, niðurgangi og kóleru.

Til að setja hamfarirnar í evrópskt samhengi er flatarmál flóðasvæðisins í Pakistan sambærilegt Sviss, Austurríki og Belgíu. Fjárþörf UNICEF til að sinna hjálparstarfinu er gríðarlega mikil og er gott til þess að vita að íslenskur almenningur ætli að leggja sitt af mörkum.

U.þ.b. 4.25 ekrur af uppskerulandi urðu fyrir flóðinu sem orsakaði gríðarlega matarskort og eykur enn á vannæringu barna í Pakistan.

„Stærsta ógnin eru sjúkdómsfaraldrar sem berast með menguðu vatni, eins og niðurgangur og kólera. Helstu fórnarlömb þessarra faraldra eru börn. Þegar hafa komið upp nokkur tilfelli af kóleru meðal barna. Mikil þörf er á mat, hreinu drykkjarvatni, sjúkragögnum, næringaríku kexi, fötum fyrir konur og börn og bólusetningum. Við höfum þegar komið út fyrstu sendingunni af hjálpargögnum og munum dreifa meiru næstu daga,“ sagði yfirmaður UNICEF í Pakistan, Martin Mogwania. 

Flóðin hafa eyðilagt vegi og brýr og tafið þannig hjálparstarf. Rafmagnslínur hafa fallið og mikil eyðilegging blasir við á spítulum, skólum og hreinlætiskerfum. Í einu héraðinu áætlar UNICEF að 80 prósent af vatnsbrunnum hafi eyðilagst. Margar fjölskyldur gista í tjöldum við skóla eða nálægt öðrum byggingum.

„Mikil eyðilegging hefur orðið á uppskeru og búfénaði. Mikill landbúnaður er stundaður á svæðunum og gætu flóðin því leitt til matarskorts og haft neikvæð áhrif langt fram í tímann. Við gætum því verið að horfa á langtíma neyðaraðstoð, fyrst er að bjarga mannslífum svo munum við aðstoða við að koma svæðunum aftur í samt horf,“ sagði Mogwanja.

UNICEF hefur dreift hreinlætispökkum, vatnsílátum og næringaríku kexi. Samtökin hafa einnig gert við 73 brunna sem 800.000 manns reiða sig á og sett upp 24 læknabúðir eða tjaldspítala sem 1 milljón manns hefur aðgang að.

Hér má sjá myndasafn frá Pakistan.

Starfsfólk UNICEF vinnur dag og nótt að því að koma börnum og fjölskyldum á flóðasvæðunum til hjálpar. Helsta hindrunin sem hjálparstarfið mætir er skortur á fjármagni.

Pakistan: Grunnupplýsingar (tölur frá 2008)

Íbúafjöldi: 176 milljónir
Höfuðborg: Islamabad
Barnadauði undir 5 ára: 89/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 72/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 67 ár
GDP á mann: 981 USD
Árleg fólksfjölgun: 2,2%
Íbúar yngri en 18 ára: 77,9 milljónir
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 71%