Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Saga UNICEF

1946 - UNICEF er stofnað innan Sameinuðu þjóðanna með það að markmiði að veita neyðaraðstoð til barna innan Evrópu eftir seinni heimstyrjöldina.

1950 - UNICEF fær aukið umboð til að þjóna einnig börnum í þróunarlöndunum.

1953 - UNICEF verður varanlegur hluti Sameinuðu þjóðanna, umboð UNICEF til að þjóna öllum börnum heimsins er staðfest til frambúðar.

1959 - Fyrri Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er samþykktur af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Forgangsatriði hans voru menntun barna, heilsa og næring.

1965 - UNICEF fær friðarverðlaun Nóbels fyrir að 'efla bræðralag milli þjóða'.

1989 - Seinni Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er samþykktur af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og verður sá sáttmáli sem er samþykktur í flestum löndum heims.

1990 - Barnaþing Sameinuðu þjóðanna er haldið þar sem börn mótuðu stefnu varðandi heilsu og næringu barna, og menntun.

2000 - Þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru samþykkt af Allsherjarþinginu. Markmiðin setja heilsu og menntun barna í forgang.

2001 - Alheimshreyfing barna (The Global Movement for Children) byrjar að virkja fólk til að skapa betri heim fyrir börnin. Herferðin 'Segjum já við réttindum barna' (Say Yes for Children) tryggir 94 milljón áheit.

2002 - Barnaþing Sameinuðu þjóðanna (The United Nations Special Session on Children) er haldið í New York. Það setur kraft í fyrri skuldbindingar við réttindi barna og tekur ákvarðanir um næstu skref við að byggja barnvænan heim.

2004 - Landsnefnd fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er stofnuð á Íslandi!