Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Dagur rauða nefsins – skemmtun sem skiptir máli

Dagur rauða nefsins er árviss viðburður hjá UNICEF á Íslandi. Hann ber í ár upp á 7. desember og nær hámarki í metnaðarfullum söfnunar- og skemmtiþætti í opinni dagskrá á Stöð 2. Meginmarkmiðið er að bjóða Íslendingum að gerast heimsforeldrar og styðja þar með í hverjum mánuði hjálparstarf UNICEF í þágu barna um allan heim.

Í aðdraganda dags rauða nefsins fer fram árleg sala á rauðum nefjum UNICEF. Nefin kosta 1.000 krónur og eru fáanleg í Bónus, Hagkaup, útibúum MP banka, Dominos og á kaffihúsum Te og kaffis. 

Hvers vegna dagur rauða nefsins?
Rauða nefið er tenging við hlátur og gleði. Markmiðið er að gleðjast og gleðja aðra með léttu sprelli: Beita kímni og hlátri til að koma alvarlegum boðskap til skila. Yfirskrift dags rauða nefsins er því „skemmtun sem skiptir máli“.
 
Með átakinu vill UNICEF gleðja landsmenn og vekja um leið athygli á þeirri neyð sem steðjar að milljónum barna um heim allan. Þjóðþekktir grínistar, leikarar, skemmtikraftar, tónlistarmenn og fleira hæfileikafólk eru í fararbroddi dags rauða nefsins. Allur sá stóri hópur fólks gefur vinnu sína til styrktar góðu málefni og gerir daginn þannig mögulegan.
 
 

Hvernig eru rauðu nefin í ár?
Rauðu nefin í fyrra, þau Skotta, Skreppur og Skjóða, nutu gríðarlegra vinsælda hjá landsmönnum en nefin í ár koma í litlum glösum sem innihalda ráðlagðan dagskammt fyrir þau sem vilja bæta heiminn.  Á glösunum stendur meðal annars:
 
Notkun: Setjið rauða nefið upp og gleðjið samferðafólk með góðu sprelli.
Aukaverkun: Með kaupum á þessu rauða nefi styrkir þú hjálparstarf UNICEF fyrir bágstödd börn.
| Mynd 2 af 3 |
Gunnar Hansson leikari kynnti sér aðstæður í Búrkína Fasó fyrr á árinu. Þar hitti hann meðal annars Aríönu sem er 9 ára og býr á götunni. Hennar saga verður sögð í þættinum þann 7. desember.