Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Ormalyf

Kannski ekki glamúrgjöfin í ár en ormalyf hafa sannarlega mikið notagildi. Á hverju ári deyja ríflega 150 þúsund börn af völdum vannæringar vegna sníkjudýra í meltingarvegi. Sníkjudýrin ræna næringarefnum úr meltingarveginum og börnin verða máttvana og mótstaða gegn sjúkdómum minnkar. Fyrir aðeins 2.079 krónur getur þú verndað 450 börn gegn þeirri eymd sem fylgir slíkum sníkudýrasýkingum. Í ofanálag gefur þú viðtakandanum stórkostlegt svar við spurningunni: „Hvað fékkst þú í afmælis-/jóla-/útskriftar-/brúðkaupsgjöf...?“

 

2.079 kr

Tengdar ljósmyndir
©UNICEF/Pirozzi - Það er fátt sorglegra en sú staðreynd að þúsundir barna deyja daglega af viðráðanlegum sjúkdómum. Til eru ódýrar og góðar lausnir eins og bóluefni, sýklalyf og lyf gegn sníkjudýrum sem gætu breytt og bætt líf barna um allan heim ef þau væru í boði sem víðast. Gjöf þín gæti bjargað lífi barna.
©UNICEF/Markisz - Sníkjudýr geta verið lífshættuleg og því geta ormalyf hjálpað börnum að vaxa og þroskast. Ormalyfið Mebendazole er framleitt í formi tyggitaflna og því auðveldara í notkun fyrir börn.