Vissir þú að...

í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.

Þú ert hér:  

Yfir 10 þúsund krónur til UNICEF

Matthildur Ásbergsdóttir, Magnús Kristinsson, Sara Xiao Reykdal og Kristján Orri Hugason komu færandi hendi á skrifstofu UNICEF með 10.605 krónur sem þau höfðu safnað með því að halda flóamarkað. Þau fundu hluti heima fyrir og komu sér fyrir í Háaleiti þar sem þau seldu gestum og gangandi. Ágóðinn rann til verkefna UNICEF fyrir börn um allan heim.

Krakkarnir eru allir átta ára og ganga í Álftamýrarskóli, en hann hefur einmitt verið virkur þátttakandi í UNICEF-hreyfingunni í nokkur ár. Það var því ekki úr lausu lofti gripið að þau ákváðu að styrkja UNICEF.

UNICEF á Íslandi þakkar þeim Matthildi, Magnúsi, Söru og Kristjáni hjartanlega fyrir innlitið á föstudaginn og fyrir framlagið, sem mun koma að góðu gagni fyrir bágstödd börn.