Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Safna fé með umhverfisvænum hætti

Þær Bríet Edel Bjarkadóttir, María Björt Hjálmarsdóttir og Stefanný Ósk Stefánsdóttir söfnuðu á dögunum yfir 30 þúsund krónum til styrktar bágstöddum börnum um allan heim með mjög svo umhverfisvænum hætti. Fyrst gengu þær hús úr húsi og söfnuðu flöskum og dósum. Því næst hjóluðu þær með fulla poka í endurvinnsluna. „Það var soldið erfitt,“ segja þær flissandi. En aftur stukku þær á hjólin og afhentu söfnunarféð á skrifstofu UNICEF í dag.

Bríet, María og Stefanný eru allar á tólfta ári og úr Langholtshverfinu.

Það var einkar skemmtilegt að fá þær Bríeti og Maríu í heimsókn. Þær fengu að sjá hjálpargögn sem UNICEF sendir á vettvang og þegar kom að vatns-og hreinlætisgögnum þá lá beint við að spyrja hvort að tennurnar yrðu ekki skítugri við að bursta þær úr óhreinu vatni. Það er ekki oft sem upplýsingafulltrúi UNICEF til margra ára verður svara vant!

Takk fyrir komuna og framlagið stelpur!